Breaking Bad trónir á toppnum yfir bestu sjónvarpsþætti 21. aldarinnar samkvæmt nýjum lista bandaríska stórblaðsins New York Times.Blaðið tók saman 100 bestu sjónvarpsþættina sem komið hafa út frá aldamótum og fékk meira en 500 leikara, handritshöfunda, framleiðendur, gagnrýnendur og aðra úr sjónvarpsheiminum til að leggja mat á úrvalið.Breaking Bad-þættirnir, sem sýndir voru á árunum 2008 til 2013, höfnuðu í efsta sæti og þarf það í sjálfu sér ekki að koma á óvart.
New York Times valdi 100 bestu sjónvarpsþætti aldarinnar – „Þetta hlýtur að vera reiðibeita“