Ánægjuleg þróun hefur orðið á loftgæðum í Peking, höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína á síðustu árum. Þar blasir nú fjallahringurinn við flesta daga en fyrir fjórtán árum sást hann örsjaldan í gegnum mengunarmistrið. Jón Óskar Sólnes veltir fyrir sér andrúmsloftinu sem hann andar að sér í Peking. Loftgæðin eru þar allt önnur en var.
Það þarf ekki að fara mörg ár aftur í tímann til að rifja upp það orðspor sem fór af loftmenguninni í borginni. Loftgæðin voru talin afleit og beinlínis heilsuspillandi. Í útjaðri Peking voru starfræktar verksmiðjur sem margar voru reknar af kolaframleiddu rafmagni, einhverjum versta vágesti sem um getur í loftslagsmálum. Með aukinni velmegun fjölgaði einkabifreiðum algjörlega hömlulaust að því er virtist og reiðhjólum fækkaði til muna.
Milljónir heimila voru hituð með orku úr úreltum reykspúandi verksmiðjum sem voru hálffaldar úr augsýn inni landi. Þá þegar eftir tímamótaráðstefnuna í Ríó árið 1992 var augljóst að ef einhver árangur ætti að nást í loftslagsmálum yrði að draga úr mengandi efnahagsaðgerðum en ekki að auka þær. Þá var talið augljóst líka að algert óráð væri að stækka enn fjölmennustu borgir heims sem væru stærstu mengunarvaldar samtímans.
Peking er heillandi stórborg með iðandi mannlíf og þrjú þúsund ára gamla menningu. Hér slær hjarta Kína og þar keisarans hallir skína. Það búa hér í borg um 23 milljónir að því er talið er og er það sjálfsagt mjög nærri lagi. Borgin stendur á sléttu norð-austarlega í Kína og norður af henni eru tveir myndarlegir fjallgarðar, Xishan- og Yanshan-fjöll. Mynda þeir nokkurs konar náttúrulega skeifu utan um höfuðborgina.
Á sumrin ríkir gjarnan rök sunnanátt sem monsúnvindar sjá fyrir rigningu. Þar er gallinn á gjöf Njarðar sá að loftmassinn situr stundum fastur og getur þá orðið óhemju heitt og rakt. Finnst heimamönnum eins og hafi hitnað frá því sem áður var, enda getur hiti legið í fjörutíu gráðum í verstu tilfellum. Á veturna ríkir hins vegar gjarnan norðanátt. Hún ber með sér kalt loft komið alla leið frá Síberíu. Til að bæta gráu ofan á svart kemur svo stundum rauðleitt rykský frá Góbí-eyðimörkinni og dvelur hér í nokkra daga.
Nú hefur hins vegar orðið grundvallarbreyting á loftgæðum til hins betra og þurfti mikla ákveðni til að ná henni fram. Verksmiðjum var gert að koma sér upp fremsta mengunarvarnabúnaði og þær fluttar á fámennari svæði. Langt er komið í mörgum hverfum borgarinnar að útrýma kolanotkun og er stefnt að þessum skiptum víðast og kemur náttúrugasið í staðinn. Þá hefur hér í Kína orðið bylting í bílamálum.
Á undraverðum tíma hefur tekist að rafvæða nánast allan bílaflotann. Meira en 70 kínverskir bílaframleiðendur starfa núna á markaði þar sem erlendum bílum fer óðum fækkandi en sparneytnar kínverskar rafmagnsbifreiðar koma í þeirra stað. Ekki má gleyma blessuðum reiðhjólunum sem ásamt glæsilegu jarðlestakerfi mynda vandað umferðarkerfi fyrir þá sem hafa ekki efni á bíl eða kjósa bíllausan lífsstíl.
Hér í Peking rennur umferðin nánast hnökralaust eftir götum og hjólreiðastígum og virðast flestir vanda sig við að láta þetta kerfi virka sem best. Þótt stundum eigi maður kannski fótum fjör að launa þegar rauði kallinn birtist á gönguljósinu og maður er bara hálfnaður yfir breiðgötuna. Miðborgin í Peking einkennist af glæsilegum skýjakljúfum hönnuðum af mörgum af frægustu arkítektum heims. Þeir njóta sín svo sannarlega núna í sólarblíðunni en þar hefur orðið gjörbylting á.
Til marks um breytta tíma og árangursríka baráttu fyrir betri loftgæðum í höfuðborg Kína má nefna að alþjóða loftgæðasetrið taldi rétt rúmlega 300 svokallaða „Bláhimnadaga“ á síðasta ári en þeir voru innan við þrjátíu fyrir fjórtán árum síðan.
Þá eru bílar á bláum númerum, sem spúa koltvísýringi, á miklu undanhaldi eins og maður getur gengið úr skugga um sjálfur með því að gefa númerum bifreiða gaum. Mikill meirihluti bíla í umferðinni ber nú græn númer til marks um að þar fari rafmagnsbíll og útséð er um þá bláu sem munu fljótlega hverfa alveg af götunum í þessar líflegu og fjörugu borg. Kannski er stórkostlegast að íbúar Peking fá nú að sjá fjallgarðana sína, Xishan og Yanshan, sem sjást mjög fallega við sjóndeildarhringinn við sólsetur, en þeir höfðu ekki sést frá borginni að kalla í áratugi.