Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samið við Boeing um smíði næstu kynslóðar árásar- og orrustuþotna fyrir sjóherinn. Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins er þotunum ætlað að leysa Super Hornet-vélar af hólmi frá og með fjórða áratug aldarinnar.
Samningurinn er hluti áætlunar um aukin yfirráð Bandaríkjanna í háloftunum. Þotunum er ætlað að verða langfleygari og sterkari en eldri kynslóðir og geta unnið með ómönnuðum kerfum.
Þetta er í annað sinn í síðari forsetatíð Donalds Trump sem Boeing verður fyrir valinu við smíði nýrra þotna eftir að fyrirtækinu var í mars á síðasta ári falin framleiðsla nýrrar hulduþotu fyrir flugherinn.
Steve Parker, yfirmaður varnarmála-, öryggis- og geimferðadeildar Boeing, segir fyrirtækið hafa fjárfest í samræmi við að það fengi þessi tvö verkefni og segir allt til reiðu við hönnun og framleiðslu þotnanna.
Verið væri að reisa verksmiðjur til framleiðslunnar en öllum tæknilegum upplýsingum verði haldið leyndum í þjóðaröryggisskyni. Verð á hlutafé í Boeing-verksmiðjunum hækkaði um tvö komma fjögur af hundraði við tíðindin en lækkaði um þrjú komma sex hjá keppinautnum Northrop Grumman.