Bilun í háspennuleiðara við vélaspenni í Fljótsdalsstöð varð til þess að ein af sex vélum stöðvarinnar er óvirk. Útlit er fyrir að viðgerð taki sex til átta vikur. Hinar vélarnar verða teknar úr rekstri í 2-3 daga, hver á fætur annarri, í næsta mánuði til að koma í veg fyrir að þær bili með sama hætti.
Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að bilunin í Fljótsdalsstöð bætist við umfangsmiklar viðhaldsaðgerðir í vinnslukerfi fyrirtækisins. Reynt verður að lágmarka áhrifin en hugsanlegt er að skerða verði orku vegna þess að minni raforka kemur frá Fljótsdalsvirkjun inn á flutningskerfið en venjulega.
Fljótsdalsstöð er stærsta aflstöð landsins, 690 megawatta vatnsaflsvirkjun sem getur unnið 5.150 gígavattsstundir af rafmagni ári. Hún var reist til að sjá álveri Alcoa á Reyðarfirði fyrir raforku.