Læknirinn og sælkerinn Ragnar Freyr Ingvarsson varð fimmtugur fyrr á þessu ári. Auk þess að vera læknir og listakokkur er hann einnig mikill mannvinur sem sýndi sig þegar hann afþakkaði allar gjafir frá öllum sem vildu gleðja hann á stórafmælinu. Í stað þess að fá gjafir bað hann alla um að styrkja Samhjálp. Rætt er við Ragnar í viðtali á vef Samhjálpar í dag þar sem hann var spurður út í þessa velvild í garð samtakanna.
Ragnar Freyr afþakkaði gjafir á fimmtugsafmælinu – Hvatti alla til að gera þetta í staðinn