„Grundvöllur úrskurðarins var að ekki lá fyrir deiliskipulag áður en byggingarleyfið var samþykkt en ekki að starfsemi Samhjálpar væri óheimil á staðsetningunni.“
Þetta segir í bókun sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær.
Kaffistofa Samhjálpar, sem átti að vera á Grensásvegi 46 tímabundið, var tilbúin til notkunar þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi byggingarleyfi vegna hennar úr í vikunni. Aðeins vantaði tilskilin leyfi til að hefja starfsemi.
Úrskurðurinn var lagður fram á borgarráðsfundinum. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstrisins lögðu fram bókanir við hann og harma að byggingarleyfi vegna kaffistofunnar hafi verið fellt úr gildi.
„Vinna þarf að vitundarvakningu um málefni hópa sem standa höllum fæti í samfélaginu“
Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Pétur Marteinsson og Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, og Silja Sóley Birgisdóttir, áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, lögðu fram bókun á fundinum.
„Grundvöllur úrskurðarins var að ekki lá fyrir deiliskipulag áður en byggingarleyfið var samþykkt en ekki að starfsemi Samhjálpar væri óheimil á staðsetningunni. Samhjálp sinnir gífurlega mikilvægum úrræðum fyrir jaðarsetta hópa,“ segir í henni.
Framlag Samhjálpar sé ómetanlegt og samfélaginu til mikilla bóta.
„Lengi hefur verið leitað að staðsetningu fyrir Kaffistofuna en ekki hefur tekist nægilega vel að finna heppilegan stað. Þetta er því miður of algeng niðurstaða þegar leitað er eftir staðsetningu fyrir velferðarúrræði. Ljóst er að vinna þarf að vitundarvakningu um málefni hópa sem standa höllum fæti í samfélaginu því ekki stafar ógn af þeim hópi sem nýtur þjónustunnar.“
Fulltrúarnir hvetja eindregið til þess að fundin verði farsæl og varanleg lausn fyrir kaffistofu Samhjálpar.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstrisins í borgarráði, lagði einnig fram bókun á fundinum. Hún tekur undir áherslur í bókun Samfylkingarinnar og Sósíalistaflokksins.
„Samhjálp hefur lagt mikið í Kaffistofuna sem tryggir þeim sem búa við fátækt, heimilisleysi, félagslega einangrun eða aðrar erfiðar félagslegar aðstæður aðgang að heitum máltíðum, kaffi og öruggu umhverfi til samveru og stuðnings. Mikilvægt er að kaffistofan eigi öruggt rými í borginni okkar. Þegar öllum dyrum er lokað þá bitnar það mest á þeim sem síst skyldi sem og samfélaginu í heild. Finna þarf leið þannig að Kaffistofan geti verið á Grensásvegi en Samhjálp hafði leitað lengi að staðsetningu áður en þessi tímabundna staðsetning varð fyrir valinu,“ segir í bókun hennar.
Meirihlutinn leggur áherslu á að finna kaffistofunni heimili í sátt við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila
Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu einnig fram bókun á fundinum. Þeir segja mikilvægt að Samhjálp geti sinnt hlutverki sínu.
„Borginni ber að tryggja að slík uppbygging sé í samræmi við lög, skipulagsreglur og með virku og jákvæðu samtali við nærumhverfið. Ljóst er af niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að annmarkar voru á undirbúningi málsins og að fara hefði átt í deiliskipulagsvinnu áður en byggingarleyfi var veitt,“ segir í bókuninni.
Slíkur undirbúningur sé forsenda þess að jafnvægi náist milli hagsmuna íbúa, þjónustuaðila og samfélagsins í heild. Meirihlutinn leggi áherslu á að finna kaffistofunni nýjan stað í Reykjavík í samstarfi við Samhjálp, íbúa og aðra hagaðila.
„Miklu máli skiptir að starfsemi Kaffistofu Samhjálpar sé öflug í borginni og fái varanlega aðstöðu til framtíðar um leið og tekið er fullt tillit til skipulagslegra sjónarmiða, lögbundinnar málsmeðferðar og sjónarmiða íbúa. Traust, vandaður undirbúningur og gagnkvæmt samtal eru lykillinn að lausn fyrir þá sem þurfa á þjónustunni að halda og borgarbúa alla. Að því mun meirihlutinn vinna.“