Fyrrverandi eiginmanni leikkonunnar Christinu Ricci hefur verið neitað um bráðabirgðaforsjá sonar þeirra. James Heerdegen, sem var giftur leikkonunni á árunum 2013-2020, taldi rétt að hann fengi forsjána eftir að sonur þeirra, Freddie sem er 11 ára, sendi honum skilaboð þar sem fram kom að leikkonan hefði drukkið áfengi í flugi.Eins og áður segir þá skildu leikkonan og Heerdegen á árinu 2020 en ári síðar fór Ricci fram á nálgunarbann með vísan til þess að fyrrverandi maður hennar hefði beitt hana ofbeldi á sambúðartíma hennar.
Krafðist forsjá sonar þeirra eftir að hann fékk skilaboð um drykkju leikkonunnar