Lögregluyfirvöld í París hafa gert skipuleggjendum Pride-göngunnar að aflýsa henni vegna hitabylgjunnar sem gengur yfir Evrópu. Veðurspár gera ráð fyrir allt að 37 stiga hita í borginni á morgun þegar gangan átti að fara fram. Sjúkrahús borgarinnar eru yfirfull.
Verði skipuleggjendur Pride ekki við beiðninni mun lögregla grípa inn í hátíðahöldin.
Yfirvöld í París hafa einnig ákveðið að banna áfengisneyslu á almannafæri tímabundið vegna hitabylgjunnar. Heilbrigðisráðherra Frakklands segir að sjúkraflutningaþjónusta Parísar hafi sinnt fjórfalt fleiri útköllum vegna hjartaáfalls á einum sólarhring. Ungt fólk sé meðal þeirra sem hafi fengið hjartaáfall í hitanum.
Hitamet fyrir júní var slegið í París á miðvikudag þegar hiti náði 40,9 stigum og hiti náði aftur 40 stigum í gær. Barn fannst látið í heitum bíl í París í gær og tvö önnur börn hafa látist í heitum bíl í Frakklandi síðan um helgina. Tugir hafa drukknað við að reyna að kæla sig niður.
Fréttastofa AFP greinir frá því að 150 milljónir manna í Evrópu muni upplifa hita yfir 35 stigum í dag.
Fréttin var uppfærð eftir að fregnir bárust af því að skipuleggjendum Pride-göngunnar í París hefði verið gert að aflýsa henni.