Vélfag tapar á æðsta dómstigi: Ekki ráðherra að aflétta frystingu fjármuna
Vélfag tapaði dómsmáli gegn utanríkisráðherra, en félagið er sagt vera í raun í eigu rússnesks útgerðarmanns sem hefur tengsl við forseta Rússlands.
Hæstiréttur úrskurðaði í tveimur málum tengdum Vélfagi í vikunni. Annað málið snéri að heimild Nicolai Kaufmanns, meirihlutaeiganda Vélfags, til að taka sæti í stjórn félagsins, sem var vísað frá að endingu, og hins vegar hvort utanríkisráðherra hafi verið heimilt að hafna afléttingu á frystingu fjármuna Vélfags sem voru í vörslu hjá Arion banka. Þar tapaði félagið gegn íslenska ríkinu og þarf að greiða eina og hálfa milljón í málskostnað.
Flókin viðskiptaflétta meints lepps
Málið er ansi flókið og teygir anga sína til viðskiptaþvingana ESB gegn Rússlandi eftir að ríkið réðst inn í Úkraínu. Í grunninn leikur grunur á að rússneski útgerðarmaðurinn Vitaly Orlov eigi í raun fyrirtækið í gegnum lepp, sem er fyrrgreindur Nicolai Kaufmann.
Í árslok 2021 keypti félagið Norebo Overseas Holding Limited 54,5% hlutafjár stofnenda fyrirtækisins. Það félag mun hafa verið dótturfélag rússneska félagsins JSC Norebo Holding, eins stærsta sjávarútvegsfyrirtækis Rússlands. Síðarnefnda félagið var í eigu Vitalys Orlovs …