Stjórnvöld í Írak íhuga að segja sig úr OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja, ef ríkinu verður ekki heimilað að auka olíuframleiðslu sína umtalsvert. Þetta segja heimildarmenn innan úr olíumálaráðuneyti landsins við Reuters.
Það yrði talsvert högg fyrir OPEC ef Írakar segðu sig úr samtökunum. Innan við tveir mánuðir eru síðan Sameinuðu arabísku furstadæmin gengu formlega úr OPEC. Írakar eru stofnfélagar í samtökunum og næststærsti olíuframleiðandinn innan þeirra, á eftir Sádi-Arabíu.
Vilja auka daglega framleiðslu um milljónir tunna
Samtökin voru stofnuð í september 1960 til að verja hagsmuni helstu olíuframleiðslulanda heims með því að samhæfa framleiðslu til að tryggja stöðugar tekjur fyrir aðildarríki.
Útflutningskvóti Íraks fyrir júlí er nærri 4,4 milljónir olíutunna á dag. Kvótinn er ákvarðaður af OPEC. Framleiðslan hefur verið öllu minni á síðustu mánuðum vegna lokunar Hormússunds. Hún nam 1,5 milljónum tunna á dag í maí, samanborið við 4,2 milljónir í febrúar.
Stjórnvöld stefna að því að ná aftur fullum afköstum og vilja auka framleiðsluna í sjö milljónir tunna á dag á næstu árum.
Stjórnvöld glíma við efnahagskreppu
Olíuútflutningur skilar bróðurparti allra útflutningstekna Íraks. Þær hafa snarlækkað eftir að Hormússundi var lokað í kjölfar þess að stríðið í Íran braust út með árásum Bandaríkjanna og Ísrael í febrúar.
Vegna þessa glímir ríkisstjórn landsins við efnahagskreppu. Því ættu óskir um mikla aukningu á útflutningskvótanum að vera teknar alvarlega af OPEC, segir háttsettur embættismaður innan ráðuneytis olíumála í Írak við Reuters.