Ivanka Trump, dóttir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, er á Íslandi ásamt eiginmanni sínum Jared Kushner. Hjónin eru á landinu í einkaerindum og dvelja í um það bil viku.
Þetta staðfestir utanríkisráðuneytið, sem veitti þeim hefðbundna aðstoð við ferðalagið ásamt bandaríska sendiráðinu. Sú aðstoð snýr að samskiptum, öryggisgæslu og fleiru.
Samkvæmt heimildum fréttastofu lentu þau á Akureyrarflugvelli í gær og fóru þaðan í Skagafjörð. Þar eru hjónin sögð dvelja á lúxushótelinu Deplum í Fljótunum.