Einn maður er í lífshættu á sjúkrahúsi og annar hlaut skurð á hálsi eftir hrottalega árás í bænum Torre Pacheco á Spáni síðdegis á fimmtudag. Lögregla handtók meintan árásarmann og rannsakar nú tildrög málsins.
Samkvæmt spænskum miðlum hófust átök milli þriggja innflytjenda, tveir þeirra eru sagðir frá Senegal en sá þriðji frá Marokkó.
Laminn ítrekað með hamri
Meðan á átökunum stóð er hinn grunaði sagður hafa dregið fram hamar og slegið annan manninn ítrekað í höfuðið. Fórnarlambið hlaut lífshættulega áverka og var flutt á sjúkrahús þar sem hann liggur enn í lífshættu.
Sami maður er einnig sagður hafa ráðist á hinn Senegalann með brotinni glerflösku og skorið hann í hálsinn, en meiðsli hans eru ekki talin lífshættuleg.
Árásin átti sér stað í sama bæ og óeirðir brutust út í fyrra
Árásin átti sér stað á Juan Carlos I breiðgötunni í Torre Pacheco, sama bæ og vakti heimsathygli sumarið 2025 þegar umfangsmikil mótmæli og átök brutust út eftir að eldri maður varð fyrir grófri árás. Eins og Nútíminn greindi frá á sínum tíma urðu þau atvik kveikjan að víðtækum deilum um innflytjendamál og öryggi á Spáni.
Óeirðir breiðast út um allan Spán – Átök milli innfæddra og innflytjenda stigmagnast
Yfirvöld hafa ekki staðfest endanlega orsök átakanna, en lögregla kom fljótt á vettvang og handtók hinn grunaða á staðnum.
🚫 🇪🇸 | PAÍS TERMINADO
En Torre Pacheco, España, un magrebí despedazó a martillazos a un africano negro, y lo dejó tendido en la vereda. Se desconoce los motivos, pero dejó en trauma a los vecinos de la zona.
¿Este es el enriquecimiento cultural que la izquierda les prometió?…
— Carlo Martin (@Liberfach0) June 25, 2026