„Ég get staðfest að hjónin eru á landinu í einkaerindum,“ segir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við Vísi. Hann vísaði að öðru leyti á bandaríska sendiráðið.
Rúv greindi fyrst frá og segir hjónin hafa lent á Akureyrarflugvelli í gær og dvelja á lúxushótelinu í Deplum í Fljótum. Þau hafi átt leið um Skagafjörð í gær.
Kushner hefur verið ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í utanríkismálum. Hann var meðal annars sá sem kynnti áform Trumps um Gasaströndina.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.