Sautján ára drengur, Louis að nafni, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri árás í borginni Narbonne í suðurhluta Frakklands. Fimm ungmenni, þar af þrír undir lögaldri, hafa verið ákærð í málinu og úrskurðuð í gæsluvarðhald.
Samkvæmt frönskum saksóknara var Louis lokkaður á byggingarsvæði að kvöldi 19. júní þar sem hópurinn beið hans. Einnig er því haldið fram að rannsókn bendi til þess að árásin hafi verið skipulögð fyrir fram og að markmiðið hafi verið að berja hann til bana.
Fannst meðvitundarlaus
Vegfarendur fundu Louis meðvitundarlausan snemma morguns 20. júní. Hann var fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka, meðal annars mar á andliti og blæðingar úr munni og nefi.
Læknar héldu honum sofandi í öndunarvél en hann lést af áverkum sínum 23. júní.
Saksóknari málsins sagði að sönnunargögn bentu til þess að árásin hefði verið fyrirfram ákveðin.
„Sönnunargögnin benda til þess að um hafi verið að ræða fyrirfram skipulagða gildru þar sem brotaþoli var lokkaður á byggingarsvæði þar sem ætlunin var að berja hann til bana.“
Myndskeið leiddi lögreglu á slóð gerenda
Yfirvöld segja að árásarmennirnir hafi tekið árásina upp á myndband og deilt upptökunni með vinum sínum áður en neyðarlínu var loks gert viðvart.
Lögregla gat í kjölfarið borið kennsl á grunaða eftir að myndskeið úr árásinni fór í dreifingu á samfélagsmiðlum. Upphaflega voru þeir grunaðir um tilraun til manndráps meðan Louis var enn á lífi, en eftir andlát hans voru ákærunum breytt í morð.
Vakið mikil viðbrögð í Frakklandi
Málið hefur vakið mikla athygli í Frakklandi. Marine Le Pen sagði dauða Louis hafa kramið hjörtu margra Frakka og gagnrýndi stjórnvöld fyrir að bregðast ekki nægilega hratt og ákveðið við afbrotum ungmenna.
Rannsókn málsins stendur enn yfir.
Við vörum við myndskeiðinu af árásinni hér fyrir neðan, en því var dreift af árásaraðilum upprunalega en síðar með samþykki fjölskyldu Louis, sem vildi að fólk fengi að sjá grimmdina á bakvið árásina sem og árásarmennina sjálfa.
WARNING – Horrific scenes from Narbonne France
This video has been released with approval of the victims family
A 17 year old boy named Louis was ambushed by a migrant gang and beaten into a coma, he sadly passed away from his injuries last night
The 5 attackers filmed the…
— Basil the Great (@BasilTheGreat) June 24, 2026