Í það minnsta 28 drónum sem stefnt var að Moskvu voru skotnir niður á um klukkutíma tímabili í kvöld. Frá þessu greinir Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu á Telegram.
Hann segir yfivröld vinna að því að finna út hvar brak drónanna féll til jarðar.
Drónaárásir Úkraínumanna gegn Rússum hafa færst í aukana á síðustu mánuðum. Þær hafa einkum beinst að orku- og olíuinnviðum í Rússlandi. Tilgangur þeirra hefur verið að skerða tekjur stjórnvalda í Kreml og gera þeim þannig erfiðara fyrir að fjármagna stríðsrekstur sinn.
Mikill eldur kviknaði í olíuhreinsistöð suðaustur af Moskvu í síðustu viku eftir árás Úkraínuhers.