Kristjáni Logasyni barst í vikunni markpóstur frá Íslandsbanka sem kom honum nokkuð á óvart. Þar var eldri viðskiptavinum boðið að koma í svokallað tæknikaffi til að læra á tæknina, eins og hvernig maður setur upp smáforrit, skráir sig inn í netbanka og hvernig hægt er að nota snjalltæki til að sinna bankaviðskiptum. Kristján telur að þarna sé bankinn að tala niður til þeirra sem eldri eru, enda gangi markpósturinn út frá því að eldri borgarar kunni ekki að nýta sér tæknina.
Kristján segir Íslandsbanka tala niður til eldri borgara í markpósti - „Ég er ekki sex ára“