Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands þar sem erfðaskrá konu sem lést árið 2024 var dæmd ógild, en talið var að konuna hefði skort arfleiðsluhæfi við gerð erfðaskrárinnar. Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem féll í gær.Hin látna átti tvö börn en annað þeirra lést á undan móður sinni. Aðilar málsins voru því dóttir hinnar látnu og tvær sonardætur hennar. Dóttirin og sonardæturnar tvær greindu allar frá góðu og innilegu sambandi við hina látnu.
Sonardætur í stríði við föðursystur sína - Erfðaskrá konu sem lést á tíræðisaldri dæmd ógild