Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í aðgerð undir Esjunni fyrir skömmu. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta. Óskað var eftir aðstoð sérsveitar.
Á mynd frá vettvangi má sjá að minnsta kosti tvo lögreglubíla umkringja annan bíl. Þá eru lögreglumenn við bílinn.