Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: „Ég hét því að gera breytingar“
„Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Breytingar hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á áðurnefndum skrifstofum. Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst fjörutíu prósent.
„Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í fréttatilkynningu. Í dag voru hópuppsagnir hjá Reykjavíkurborg. Uppsagningarnar ná til skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Lögð voru niður skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa.
Borgarráð fundaði um breytingarnar í dag. En í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að þær munu hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á áðurnefndum skrifstofum. Þá verða níu störf verða færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar.
Átján störf lögð niður
Átján störf verða lögð niður en gert er ráð fyrir að ráðið verði í einhver ný störf eftir því sem innleiðingunni vindur fram. Þá verður verkefnum einnig útvistað. Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst fjörutíu prósent.
Í tilkynningunni kemur fram að um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst.
„Það er eðlilegt að ég horfi …