Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg hefur verið lögð niður og öllum upplýsingafulltrúum verið sagt upp.
Ekki var óskað eftir því að þeir ynnu uppsagnarfrest.
Á skrifstofu samskipta og viðburða störfuðu alls 14 manns, samkvæmt vef Reykjavíkurborgar: samskiptastjóri, sex upplýsingafulltrúar, þrír verkefnastjórar viðburða, verkefnastjóri miðlunar, ljósmyndari og tveir myndbandsgerðarmenn. Samkvæmt heimildum fréttastofu var tíu manns sagt upp
Ekki liggur fyrir hve mörgum hefur verið sagt upp í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Formaður Sameykis staðfestir að félaginu hafi verið tilkynnt um uppsögnina fyrirfram samkvæmt lögum um hópuppsagnir sem tilkynntar eru til Vinnumálastofnunar.
Skilgreining Vinnumálastofnunar á hópuppsögn er eftirfarandi:
- að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtæki sem venjulega hafa fleiri en 20 og færri en 100 starfsmenn í vinnu,
- að minnsta kosti 10% starfsmanna í fyrirtæki sem venjulega hefur hið minnsta 100 starfsmenn, en færri en 300 starfsmenn í vinnu.
- að minnsta kosti 30 starfsmenn í fyrirtæki sem venjulega hafa 300 starfsmenn eða fleiri í vinnu.
Uppsagnir hjá fyrirtæki með 19 starfsmenn eða færri falla því ekki undir reglur um hópuppsagnir, jafnvel þótt 10 starfsmönnum eða fleiri sé sagt upp.
Frekari upplýsinga um uppsagnirnar er að vænta síðdegis. Borgarstjóri og þeir borgarfulltrúar sem fréttastofa hefur náð tali af ætla ekki að tjá sig fyrr en eftir að fundargerð borgarráðs hefur verið birt, en borgarráð samþykkti skipulagsbreytingarnar á fundi sínum í morgun.
Þá verður einnig send út fréttatilkynning um málið eftir að fundargerðin hefur verið birt.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur ítrekað lagt til að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar verði lögð niður.
Á verkefnalista meirihlutans kemur fram að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks ætli að „færa nauðsynleg verkefni mannréttindaskrifstofu yfir á velferðarsvið og ráðast í skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra“ innan 100 daga í meirihlutastarfi.
„Þangað fara nokkur hundruð milljónir á ári hverju og við erum eina sveitarfélagið sem rekur mannréttindaskrifstofu. Ég veit ekki til þess að mannréttindi séu fótum troðin í Garðabæ eða Hafnarfirði eða Mosfellsbæ þótt þar sé ekki starfrækt slík skrifstofa,“ sagði Hildur í Silfrinu í mars.
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, sem sumir af starfsmönnum Reykjavíkurborgar eru skráðir í, segir dæmi um fyrrverandi starfsmenn borgarinnar sem hafa þegar hafa haft samband við stéttarfélagið.
Hann staðfestir að Sameyki hafi verið tilkynnt um uppsögnina fyrirfram samkvæmt lögum um hópuppsagnir sem tilkynntar eru til Vinnumálastofnunar.
Hann kvaðst þó ekki geta veitt upplýsingar um umfang uppsagnanna.
Ekki hefur náðst í fulltrúa í borgarráði, borgarritara né borgarfulltrúa Viðreisnar, Róbert Ragnarsson, sem leiðir hagræðingarhóp meirihlutans.
Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp eða fært til í starfi.
- Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skrifstofa samskipta og viðburða verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir.
- Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp.
- Þá herma heimildir fréttastofu einnig að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður. Heimildir herma að nokkrum hafi verið sagt upp og þrír færðir til í starfi.
- Stefnumótunar- og þróunarteymis skrifstofu borgarstjóra hefur einnig verið lagt niður samkvæmt heimildum.
- Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun.
- Ekki liggur fyrir hvort fleiri breytingar á innri starfsemi borgarinnar hafi verið samþykktar í dag.
Ég heiti Iðunn Andrésdóttir og mun færa ykkur nýjustu fregnir af nýjustu vendingum hér í þessari fréttavakt.