Ísland er fyrsta þjóðin í Evrópu til þess að slökkva alveg á 2G- og 3G-sendum. Ástralía var fyrsta landið í heiminum og mörg lönd eru langt komin í útfösun en Ísland reið á vaðið. Frakkar, Spánverjar og Ítalar styðjast enn að miklu leyti við 3G á meðan þjóðir á borð við Þýskaland og Svíþjóð eru langt komnar í útfösun. Ólafur Aðalsteinsson, sviðstjóri innviðasviðs hjá Fjarskiptastofu, segir að aðrar Evrópuþjóðir hafi leitað til Íslands til þess að fá kynningu á því hvernig útfösun hafi gengið og hvaða vandamál hafi komið upp.
Ferðamenn gætu lent í miklum vandræðum
Eitt af vandamálunum á Íslandi er að sum símtæki, sem styðja VoLTE og 5G, leita í neyðarham þegar hringt er neyðarsímtal og ná þar með ekki sambandi við 112. Símar geta hringt í hefðbundin sjö stafa símanúmer en ekki 112.
Mörg þessara tækja eru gömul eða keypt erlendis. Ferðamenn sem sækja Ísland heim gætu því lent í vandræðum við komuna til landsins. Annað hvort gætu þeir verið með ekkert símasamband á sínum tækjum eða fullt samband en síminn næði ekki sambandi við 112 í neyðartilvikum.
Ólafur segir að erfitt sé að ná til þessa hóps en vinna hafi staðið yfir með fyrirtækjum í ferðaþjónustu til þess að koma skilaboðum áleiðis.
„Ég held að það ætti að ganga ágætlega. Við ákváðum í lok maí að senda út tölvupóst með einblöðungi á ensku þar sem koma fram leiðbeiningar hvernig eigi að bera sig að. Við sendum þetta á samtök aðila í ferðaþjónustu, Ferðamálastofu og Safe Travel. Þetta verkefni sýnir enn og aftur að það þarf að huga að mörgu. Við þurfum hreinlega aðeins að ýta á þessa aðila sem við höfum verið í sambandi við til þess að ítreka að þessar upplýsingar komist til ferðamanna sem hingað koma,“ segir hann.
Engar sérstakar ráðstafanir fyrir ferðamenn
Forstjóri Hölds bílaleigu segir að engar sérstakar ráðstafanir séu gerðar hjá þeim varðandi þessar upplýsingar. Upplýsingar sem þeir komi til ferðamanna séu af öðrum toga og það sé mikið af upplýsingum sem þurfi að koma til þeirra þegar þeir leigja sér bíl. Um 60% allra ferðamanna á Íslandi leigi sér bíl.
Þá segir Inga Dís Richter, sölustjóri hjá Icelandia sem rekur Reykjavík Excursion, að engin vinna sé í gangi hjá þeim við að upplýsa ferðamenn um lokun á 2G- og 3G-sendum á Íslandi.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að heilmikil vinna hafi átt sér stað meðal stóru ferðaskrifstofanna þegar útfösunin hófst en hann þekki ekki hvernig henni er háttað núna.
Um 50% ferðamanna komi til Íslands á eigin vegum og því sé ógjörningur að ná til þeirra allra. Aðeins brot af þeim komi með flugi með Icelandair. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu sendir Icelandair tölvupóst til sinna viðskiptavina um viku fyrir komuna til Íslands og Fjarskiptastofa hefur líka búið einblöðunga til þess að hafa til upplýsinga í flugstöðinni og fjölsóttum ferðamannastöðum.