Kolfinna hefur getið sér gott orð sem leikstjóri og Sigurbjartur bæði sem leikari og sem tónlistarmaður, undir listamannsnafninu Sturla Atlas.
Hjónaleysin fengu tækifæri til að vinna saman í fyrra þegar Borgarleikhúsið sýndi Hamlet undir leikstjórn Kolfinnu með Sigurbjart sem Hamlet sjálfan.
Vísir birti fyrst fréttir af því að parið væri að slá sér upp í mars árið 2024.
Það var svo ekki nema hálfu ári seinna sem fréttir bárust af því að þau hefðu keypt saman íbúð við Mýrargötu.
Íbúðin er í nýbyggingu byggðri árið 2023.
Íbúðin sjálf er 76 fermetrar og geymslan átta fermetrar.
Fasteignaauglýsinguna má finna með að smella hér.