Læknar segja mikilvægt að fólk sem er í mjög miklum hita fylgist með einkennum eins og þreytu, höfuðverkjum, ógleði og jafnvel pirringi. Alvarlegri einkenni, eins og óráð, geta verið merki um hitaslag. Í slíkum tilfellum er mikilvægt að leita læknisaðstoðar sem allra fyrst.
Það getur verið að fólk sem er komið með hitaslag sé ekki sjálft í stöðu til að leita sér aðstoðar vegna óráðs eða meðvitundarleysis. Því er mikilvægt að samferðafólk sé vakandi fyrir einkennum hvors annars.
Hitaviðvaranir eru í gildi í um 15 löndum á meginlandi Evrópu. Ekkert lát er á hitabylgjunni sem gengið hefur yfir álfuna undanfarna daga. Hiti fer víða yfir 40 stig.
Einkenni sem flestir þekkja
Sasan Már Nobakht er bráðalæknir á Landspítalanum í Fossvogi og á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hann segir gott að skipta hitatengdum einkennum í tvo flokka.
„Fólk hugsar yfirleitt um hitaslag en fyrirboðinn er yfirleitt hitaörmögnun. Við þekkjum held ég flestöll þessi einkenni þegar við höfum farið erlendis og erum búin að vera að sóla okkur mikið. Það er þessi klassíski sólstingur sem fólk yfirleitt talar um þar sem það fær höfuðverk, verður þreytt, pirrað, kannski óglatt og lystarlaust,“ segir Sasan Már.
Flestir þekki þessi einkenni og bregðist við með því að fara í skugga og kæla sig niður. Yfirleitt líði einkennin hjá.
Hitaslag er hættulegra en hitaörmögnun.
„Þá erum við yfirleitt með þessi einkenni sem hitaörmögnun getur valdið en ofan á það ertu kominn með háan hita, sem er yfirleitt skilgreindur sem yfir 40 gráður, og þú ert líka kominn með áhrif á taugakerfið, miðtaugakerfið, þannig að fólk byrjar að vera ruglað eða í óráði. Það getur fengið flog og jafnvel farið í dá eða hjartastopp. Þetta eru svona helstu hætturnar sem geta orðið þegar fólk er í háum hita, hvort sem það er í beinni sól eða háum lofthita eða bæði, erlendis.“
Ef maður verður var við einhver þessara einkenna er mikilvægt að koma sér í skugga, kæla sig niður, létta af klæðum og reyna að drekka nóg af köldum vökva.
Vökvainntaka mikilvæg
Jóhanna Brynjarsdóttir, sérnámslæknir á bráðamóttökunni í Fossvogi, hefur frekari ráð varðandi að halda sér kældum.
„Það sem við ráðleggjum fólki eða gera þegar svona kemur upp á er að huga vel að vökvainntöku, vera duglegt að drekka og þá ekki bara vatn heldur drykki sem innihalda sölt. Það er hægt að kaupa svona duft í apótekum sem er blandað út í vatn eða jafnvel svona sportdrykki. Þá er ég ekki að tala um koffíndrykki heldur frekar eitthvað eins og Gatorade eða Powerade, einhverja svona vítamín- og steinefnabætta drykki,“ segir Jóhanna.
„Það sem hefur reynst best til að lækka og meðhöndla hækkaðan líkamshita eða þessi einkenni er að kannski hafa aðgang að einhverjum kælipoka, köldum handklæðum til þess að setja aftan á hálsinn, í handarkrikana ef manni er mjög heitt, aftan á bakið eða jafnvel nárana. Fyrir krakkana og jafnvel fullorðna getur verið rosalega gott að úða vatni á húðina og nota svona litlar viftur. Það er í rauninni það sem við notum hérna á sjúkrahúsinu til að bregðast við ofhitnun,“ segir hún.
Mikilvægt er að vera vakandi fyrir einkennum samferðafólks. Fólk sem verður fyrir ofhitnun getur misst meðvitund og ekki verið í stöðu til að leita sér hjálpar. Ef fólk sýnir einkenni mikillar ofhitnunar eða hitaslags verður að bregðast strax við.
„Ef þú ert komin í hitaslag þarftu svolítið að reiða þig á aðrar manneskjur sem eru í kringum þig til þess að átta sig á því og hringja á hjálp. Hitaslag, þá þarftu í raun og veru að fara á sjúkrahús eða hringja á neyðarlínu til þess að fá aðstoð því það er lífshættulegt fyrirbæri og það þarf inngrip strax,“ segir Sasan Már.
Ef þú ert komin í hitaslag þarftu svolítið að reiða þig á aðrar manneskjur.
Þá segir hann eldra fólk útsettara fyrir hitaslagi.
„Það tengist oftast þeirra eigin getu til að stjórna líkamshita. Hún er aðeins skertari hjá eldra fólki en það er líka af því að eldra fólk er oft á lyfjum sem hafa áhrif á hitastjórnun, til dæmis hjartalyf, einhver verkjalyf eða svefnlyf og slíkt. Það er kannski bara almennt mælt með því, þegar hitinn er sem hæstur yfir daginn, að halda sér inni í köldu loftkældu rými,“ segir hann.