Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður. Þetta var samþykkt á borgarráðsfundi rétt í þessu samkvæmt heimildum fréttastofu. Heimildir herma að nokkrum hafi verið sagt upp og þrír færðir til í starfi.
Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg var einnig lögð niður á fundinum og hefur öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar verið sagt upp.
Skrifstofur ráðhússins voru fimm. Þrjár standa eftir: skrifstofa borgarstjóra og borgarritara, skrifstofa borgarstjórnar og borgarlögmaður. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur stefnumótunar- og þróunarteymi skrifstofu borgarstjóra einnig verið lagt niður.
Ekki hefur náðst í fulltrúa í borgarráði, borgarritara né borgarfulltrúa Viðreisnar, Róbert Ragnarsson, sem leiðir hagræðingarhóp meirihlutans.
Ekki liggur fyrir hvort fleiri breytingar á innri starfsemi borgarinnar hafi verið samþykktar á fundinum.
Á verkefnalista meirihlutans kemur fram að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks ætli að „færa nauðsynleg verkefni mannréttindaskrifstofu yfir á velferðarsvið og ráðast í skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra“ innan 100 daga í meirihlutastarfi.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur ítrekað lagt til að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar verði lögð niður.
„Þangað fara nokkur hundruð milljónir á ári hverju og við erum eina sveitarfélagið sem rekur mannréttindaskrifstofu. Ég veit ekki til þess að mannréttindi séu fótum troðin í Garðabæ eða Hafnarfirði eða Mosfellsbæ þótt þar sé ekki starfrækt slík skrifstofa,“ sagði Hildur í Silfrinu í mars.