Ríkiseignir hafa opnað fyrir tilboð vegna jarðvinnuframkvæmda fyrir nýtt öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni í Árborg.
Á útboðsvefnum segir að fyrirhugað sé að byggja nýtt háöryggisfangelsi sem rýma eigi 128 afplánunarfanga. Fangelsið á að leysa af núverandi fangelsi að Litla-Hrauni.
Öryggisfangelsið verður byggt í tveimur áföngum, að því er segir í útboðsauglýsingunni.
„Fyrst verður lögð áhersla á almenn fangarými sem rúma 56 fanga, skólabyggingu, eina vinnustofu, vöruhús, hliðbyggingu, sem og gesta-/starfsmannabílastæði. Í seinni áfanga verður byggð öryggisdeild sem rúmar 16 fanga, fyrirmyndardeild sem rúmar 56 fanga, aðra vinnustofu, starfsmannahús og sér starfsmannabílastæði.“
Sá hluti verksins sem boðinn er út þessu sinni felur í sér aðstöðusköpun, uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja, afvötnun svæðis, jarðvinnu fyrir mannvirki fyrsta áfanga, fyllingar, jarðvegsskipti og uppsetningu ytri netgirðingar.
Útboðsfrestur rennur út 20. ágúst.