Meðal þeirra sem störfuðu á sviðinu eru upplýsingafulltrúar borgarinnar. Þeir voru sjö og hefur öllum verið sagt upp. Samkvæmt heimildum fréttastofu tekur breytingin gildi strax og hefur ekki verið óskað eftir áframhaldandi vinnuframlagi þeirra.
Starfsfólk á sviðinu fékk í morgun bréf um fyrirhugaðar breytingar og var svo kallað á fund borgarritara Þorsteins Gunnarssonar. Auk upplýsingafulltrúa var starfsfólki á sviðinu sagt upp sem hefur sinnt ljósmyndun og myndbandagerð.
Nýr meirihluti tók við eftir kosningar sem hefur talað fyrir hagræðingu í rekstri borgarinnar.
Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.