Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg hefur verið lögð niður og öllum upplýsingafulltrúum verið sagt upp.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var þetta samþykkt á fundi borgarráðs í dag og flestum starfsmönnum skrifstofunnar hefur þegar verið sagt upp. Ekki var óskað eftir því að þeir ynnu uppsagnarfrest. Aðrir verða færðir til í starfi.
Heimildin greindi fyrst frá.
Á skrifstofu samskipta og viðburða störfuðu alls 14 manns, samkvæmt vef Reykjavíkurborgar: samskiptastjóri, sex upplýsingafulltrúar, þrír verkefnastjórar viðburða, verkefnastjóri miðlunar, ljósmyndari og tveir myndbandsgerðarmenn. Samkvæmt heimildum fréttastofu var tíu manns sagt upp
Fréttin verður uppfærð.