Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hefur verið lögð niður.
Samkvæmt fréttastofu RÚV var ákvörðunin samþykkt á borgarráðsfundi rétt í þessu og var nokkrum starfsmönnum sagt upp og þrír færðir til í starfi.
Ekki liggur fyrir hvort fleiri breytingar á innri starfsemi borgarinnar hafi verið samþykktar á fundinum.
Á verkefnalistanum
Á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar kemur fram að meirihlutinn ætli sér að „færa nauðsynleg verkefni mannréttindaskrifstofu yfir á velferðarsvið og ráðast í skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra“ innan 100 daga í meirihlutastarfi.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur einnig ítrekað lagt til að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar verði lögð niður.
„Þangað fara nokkur hundruð milljónir á ári hverju og við erum eina sveitarfélagið sem rekur mannréttindaskrifstofu. Ég veit ekki til þess að mannréttindi séu fótum troðin í Garðabæ eða Hafnarfirði eða Mosfellsbæ þótt þar sé ekki starfrækt slík skrifstofa,“ sagði Hildur í Silfrinu í mars.