Stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa fundað með ríkisstofnuninni Byggðastofnun um mögulega lánveitingu til að ráðast í umbætur á húsnæði skólans í Norðurárdal. Skólinn hefur reynt að selja fasteignirnar um tveggja ára skeið en án árangurs. Þetta kemur fram í svörum frá rektor skólans, Ólínu Þorvarðardóttur, við spurningum fréttastofu um málið.
„Við erum opin fyrir öllu í því sambandi.“
Ólína segir í svarinu að Háskólinn á Bifröst vilji koma þessum fasteignum í betri notkun, hugsanlega með útleigu til rekstraraðila í Borgarbyggð, og að þá þurfi fé til að gera eignirnar upp. Hún segir að ekki sé búið að ganga frá umsókn um lán til Byggðastofnunar en viðræður hafi farið fram. Fréttastofa spurði Ólínu um þessar viðræður við Byggðastofnun vegna heimilda um að þetta samtal um lánveitingu væri í gangi.
Orðrétt segir í svari Ólínu: „Rektor og stjórnendur Háskólans á Bifröst hafa um nokkurt skeið haft hug á því að hlúa að eignum Háskólans á Bifröst í Borgarfirði, og eru að skoða ýmsa möguleika í því sambandi. Húseignirnar á Bifröst voru settar á sölu fyrir tveimur árum, um sama leyti og skrifstofur skólans fluttust þaðan til Hvanneyrar og Reykjavíkur. Hluti húsnæðisins hefur staðið ónotaður síðan þá, þ.e. gamla skólahúsið og hluti af íbúðarhúsnæðinu. Okkur langar að koma þessum húseignum í not og gera við þann hluta þeirra sem þarfnast endurgerðar í því skyni að geta hafið þar einhvers konar starfsemi eða rekstur á vegum Háskólans á Bifröst og/eða til dæmis með útleigu húsnæðisins, svo sem til rekstraraðila á svæðinu. Þetta er allt í skoðun og athugun, en ekkert hefur enn verið ákveðið. Við höfum rætt málið við Byggðastofnun en að svo stöddu hefur ekki verið gengið frá lánsumsókn, svo fréttir þar að lútandi eru ótímabærar.“
Talsverður fréttaflutningur hefur verið um Háskólann á Bifröst í ár. Ólína tók við sem rektor skólans eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík lét af störfum vegna mikilla deilna í skólanum. Þá hefur verið rætt um háar vertakagreiðslur til kennara skólans. Meðal annars má hlusta á umræður um þessar deilur hér.
Sjálfseignarstofnun fjármögnuð með opinberu fé
Eins og fréttastofa fjallaði um fyrr á árinu þá er Háskólinn á Bifröst sjálfseignarstofnun sem er í dag nær alfarið fjármögnuð af íslenska ríkinu.
Skólinn var á Bifröst í Norðurárdal í Borgarfirði til 2024 og þar fór kennsla fram. Í dag er Bifröst fjarnámsskóli sem er með skrifstofur í Borgartúni í Reykjavík.
Skólinn fær í dag um 1200 milljóna króna fjárframlag frá ríkinu.
Allt frá efnahagshruninu 2008 hefur Háskólinn á Bifröst átt í verulegum fjárhagserfiðleikum vegna mikillar skuldsetningar við fasteignauppbyggingu í Norðurárdal á árunum fyrir hrun. Þessi uppbygging var að stóru leyti fjármögnuð með lánum frá Íbúðalánasjóði. Þessi lán fluttust svo til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Stofnunin hefur á síðustu árum afskrifað 2,3 milljarða króna skuldir hjá fasteignafélagi Háskólans á Bifröst sem heldur utan um fasteignir háskólans í Norðurárdal. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er ríkisstofnun og því er það íslenska ríkið sem á endanum hefur afskrifað þessar skuldir. Stofnunin var með veð í fasteignunum. Þetta kemur fram í ársreikningi Kiðár ehf., fasteignafélags Háskólans á Bifröst, fyrir árið 2024.
Fasteignirnar á Bifröst eru helst eign skólans, eða fasteignafélags hans, en þessar eignir hafa ekki nýst sem skyldi síðustu ár líkt og Ólína kemur inn í svörum. Þessu vill Ólína breyta.
Hún segir enn frekar um þetta í svörum sínum til fréttastofu: „Íbúðarhúsnæði skólans er í góðu lagi. Gamla skólahúsið þarfnast viðhalds en er í þokkalegu ásigkomulagi, og þess vegna viljum við freista þess að koma því í notkun af einhverju tagi, annað hvort fyrir okkur sjálf eða með útleigu til annarra rekstraraðila. Við erum opin fyrir öllu í því sambandi.“
Hluti af umræðunni um framtíð Háskólans á Bifröst hefur meðal annars snúist um það hvort skólinn eigi rétt á sér áfram sem háskóli eða ekki. Þau sem hafa tekið þátt í þeirri umræðu eru meðal annars Ólína Þorvarðardóttir og Runólfur Ágústsson sem var rektor skólans á árunum fyrir efnahagshrunið og maðurinn sem stóð á bak við þá miklu uppbyggingu sem var á háskólasvæðinu í Borgarfirði á þessum árum.
Hvaða starfsemi er á háskólasvæðinu á Bifröst í dag?
Á háskólasvæðinu á Bifröst í dag búa í dag um 270 manns í leiguhúsnæði, samkvæmt upplýsingum frá skólanum. Af þessum 270 eru 210 flóttamenn frá Úkraínu sem hafa búið þar eftir að hafa komið hingað eftir innrás Rússa í Úkraínu.
Fólkið býr í húsnæði sem áður hýsti nemur skólans sem bjuggu á háskólasvæðinu en íbúðir voru byggðar þar á árunum fyrir bankahrunið 2008. Úrræðið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Vinnumálastofnunar og Sveitarfélagsins Borgarbyggðar.
Ef Háskólinn á Bifröst, eða fasteignafélagið Kiðá ehf., hefði náð að selja fasteignirnar í Norðurárdal, líkt og skólinn vildi gera, þá hefðu flóttamennirnir þurft að flytja annað.