Jaðarhægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) heldur þing í Erfurt í Austur-Þýskalandi dagana 4.-5. júlí. Öryggisáætlanir þýsku lögreglunnar gera ráð fyrir allt að fimmtíu þúsund mótmælendum í einhverjum stærstu mótmælum í nokkur ár.
Sérstakar áhyggjur er lögreglan sögð hafa af á þriðja þúsundi ofbeldishneigðra öfgavinstrimanna sem gætu efnt til ófriðar, að því er kemur fram í frétt evrópska blaðsins Politico. Þeir gætu laumað sér inn í raðir friðsamra mótmælenda og ráðist á lögreglumenn og reynt að hleypa flokksþinginu upp.
Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda þegar AfD hélt flokksþing sitt í Riesa í Saxlandi.
AfD mælist nú vinsælasti flokkur Þýskalands í skoðanakönnunum með um 28 prósent fylgi. Flokkurinn er talinn eiga góða mögulega á að vinna flest atkvæði í sambandslandskosningum í Saxlandi-Anhalt og Mecklenburg-Vorpommern í haust.