Sænski TikTok-áhrifavaldurinn Joseph Said, sem tengdur er Foxtrot-glæpasamtökunum, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að skipuleggja tvær handsprengjuárásir. Önnur árásin beindist fyrir mistök að rangri íbúð þar sem saklaus móðir og ung dóttir hennar sváfu.
Móðirin missti báða fæturna og dóttirin hlaut alvarleg brunasár. Aftonbladet greinir frá málinu.
Handsprengjan sprakk í svefnherberginu
Árásin var gerð í Tumba, sunnan við Stokkhólm, 28. apríl 2025. Handsprengju var kastað inn um glugga og sprakk hún í svefnherbergi mæðgnanna.
Þær særðust báðar alvarlega í sprengingunni og eldsvoðanum sem fylgdi. Fjölskyldan hafði engin tengsl við glæpastarfsemi og maðurinn sem árásin átti að beinast gegn bjó í íbúðinni fyrir ofan.
Rannsakendur telja að árásina megi rekja til fíkniefnaviðskipta sem fóru úrskeiðis. Kaupendur hafi ekki greitt fyrir fíkniefnin og því hafi verið ákveðið að hefna sín.
Stýrði árásinni erlendis frá
Samkvæmt rannsókninni gaf Said fyrirmæli í gegnum dulkóðuð samskiptaforrit. Tveir menn fóru frá Skáni til Stokkhólms og sóttu handsprengjuna. Annar þeirra tók síðan leigubíl að húsinu og innan við fimmtán mínútum síðar varð sprengingin.
Said hafði lýst yfir stuðningi við Rawa Majid, leiðtoga Foxtrot, í beinni útsendingu á TikTok og birt áróður tengdan glæpasamtökunum. Hann var einnig dæmdur fyrir að skipuleggja aðra handsprengjuárás í Sätra.
Alræmd sænsk glæpasamtök
Foxtrot eru meðal alræmdustu glæpasamtaka Svíþjóðar og hafa verið tengd umfangsmikilli fíkniefnasölu, vopnasölu, skotárásum og sprengjutilræðum.
Rawa Majid, sem gengur undir viðurnefninu „Kúrdíski refurinn“, er talinn leiðtogi samtakanna. Árið 2023 klofnuðu þau eftir að upp úr samstarfi Majid og Ismail Abdo, fyrrverandi hægri handar hans, slitnaði. Blóðug hefndarhrina fylgdi í kjölfarið þar sem bæði ættingjar og óviðkomandi einstaklingar urðu skotmörk.
Þungir dómar fylgdu
Dómurinn taldi Said hafa sýnt algjört skeytingarleysi gagnvart bæði ætluðum skotmörkum og saklausu fólki. Sérstaklega var vísað til þeirra skelfilegu afleiðinga sem árásin hafði fyrir fjölskylduna.
Maðurinn sem kastaði handsprengjunni var dæmdur í 13 ára og tíu mánaða fangelsi. Tveir aðrir fengu fangelsisdóma og einn var dæmdur til lokaðrar unglingavistar.