Mánaðarpassar fyrir nágranna Smáralindar - MBL.IS
📅 2026-06-25 12:23:00
👁️ 0 lesið
Íbúum í nágrenni Smáralindar mun standa til boða að leigja bílastæði við Smáralind á hagstæðu verði. Þetta segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Heimum, en útfærslan verði kynnt í haust.
Tilefnið er að Smáralind greindi frá því í fyrradag að til stæði að innleiða nýtt fyrirkomulag á bílastæðum við verslunarmiðstöðina, „með það að markmiði að tryggja viðskiptavinum betra aðgengi að bílastæðum við húsið“. Ókeypis verður að leggja við Smáralind í fjórar klukkustundir en eftir þann tíma verður innheimt bílastæðagjald sem nemur 450 krónum á klukkustund.
Innleiðing kerfisins hefst í haust og verður framkvæmd í áföngum. Rekstur og þjónusta kerfisins verður í höndum Green Parking, að því er segir í tilkynningu frá Smáralind.
Tilkynningin vakti athygli og sköpuðust meðal annars umræður meðal íbúa í Smárabyggð, nýja hverfinu sunnan Smáralindar sem er með tæplega 700 íbúðir.
Af því tilefni var Baldur Már spurður hvort Heimar, sem eiga Smáralind, myndu bjóða upp á leigu á stæðum á vægara verði en sem nemur tímagjaldi. Baldur Már upplýsti þá að mánaðarpassar yrðu kynntir í haust en nánar yrði greint frá þeirri þjónustu og verðlagningu þegar nær dregur.
„Við erum einfaldlega að tryggja að viðskiptavinirnir fái stæði en það má til dæmis nefna að þegar Smáralind er opnuð klukkan 11 á morgnana eru 400 bestu stæðin alltaf upptekin. Starfsfólk Smáralindar og skrifstofubygginga í kring er þá mætt til vinnu.
Fái bestu stæðin
Þannig að við erum einfaldlega að tryggja að viðskiptavinir fái bestu stæðin en mjög fáir viðskiptavinir leggja lengur en í fjóra tíma. Þannig að þetta á ekki að koma niður á þeim. Það má líka benda á að aðsókn í Smáralind jókst um 20-40% eftir að hin nýja mathöll, Garðurinn, var opnuð í nóvember síðastliðnum,“ segir Baldur Már.
Loks vekur hann athygli á því að starfsfólk í Smáralind muni áfram geta lagt frítt við húsið á vinnutíma, en gert sé ráð fyrir sérstökum starfsmannasvæðum fjær inngöngum og eftirsóttustu stæðunum.
Byggt yfir stæði
Klasi undirbýr mikla uppbyggingu á bílaplaninu sunnan Smáralindar, gegnt Silfursmáranum í Smárabyggð.
Rætt hefur verið um 80 íbúðir og 15 þús. fermetra af skrifstofuhúsnæði, ásamt bílakjallara með um 400 stæðum.
Þá er rætt um 50 stæði ofanjarðar en málið hefur verið til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum í Kópavogi.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.