Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda (FA), segir augljóst að Íslandspóstur misbeiti markaðsráðandi stöðu sinni á pakkamarkaði til að hindra nýja keppinauta í því að ná fótfestu.
Í gær var sagt frá því að blaðinu hefðu borist ábendingar um ýmis bolabrögð Íslandspósts sem Þórhildur Ólöf Helgadóttir vísaði alfarið á bug.
„Pósturinn hefur að undanförnu hækkað gjaldskrár á ýmissi þjónustu annarri en pakkasendingum, þar sem samkeppnin er hörðust, til að mæta viðvarandi taprekstri og fær hundruð milljóna króna úr sjóðum skattgreiðenda en finnur nú skyndilega svigrúm til ríflegra afslátta til að undirbjóða verð einkarekinna keppinauta,“ segir Ólafur.
Hann segir það hafa vakið athygli FA að Pósturinn hafi við hækkun á annarri þjónustu vísað m.a. til launahækkana og kílómetragjalds sem kostnaðarhækkana sem hefðu áhrif á verðskrár.
„Þessir þættir virðast hins vegar ekki hafa nein áhrif á pakkaþjónustuna. Listaverðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið óbreytt í tvö ár, á tíma launahækkana og verðbólgu, og á landsbyggðinni lækkaði það í febrúar 2025. Afslættir hafa hækkað duglega. Hámarksafsláttur, sem var 10%, er kominn í 20%, þannig að í raun hefur verð lækkað,“ segir hann.
Ólafur segir fullyrðingar forstjóra Póstsins ekki ríma við þann veruleika sem FA sjái úti á markaðnum.
„Þar er augljóslega í gangi hörð sókn Póstsins til að ná til sín viðskiptum, með skilyrtum afsláttum og tæknibrellum til að raðast ofar í vali á afhendingarmáta þegar neytendur kaupa vörur í netverslunum. Við höfum séð tölvupósta frá sölumönnum Póstsins, þar sem netverslunum eru boðin afsláttarkjör gegn því að Pósturinn birtist sem fyrsti kostur við val viðskiptavina á afhendingarmáta. Það gengur þvert á það sem Þórhildur segir í Morgunblaðinu.“
Þá segist Ólafur sömuleiðis hafa séð gögn sem sýni að á undanförnum vikum hafi þeim netverslunum snarfjölgað sem bjóða upp á Póstinn sem fyrsta kost, á kostnað einkarekinna keppinauta.
„Sömu gögn segja okkur að verðið hjá Póstinum hefur snarlækkað á undanförnum vikum. Að okkar mati er full ástæða til að samkeppnisyfirvöld grípi inn í þessa hegðun ríkisfyrirtækisins með bráðabirgðaákvörðun. Við teljum sömuleiðis ástæðu til að fjármálaráðherrann, sem heldur á hlutabréfi ríkisins í Póstinum, hnykki á þeirri eigendastefnu sem hefur verið mótuð.“
Ólafur kveðst áhyggjufullur yfir lélegu eftirliti með samkeppnisháttum Póstsins og fjáraustri ríkisins í rekstur fyrirtækisins. Byggðastofnun hafi „engan áhuga á að sinna hlutverki sínu“ og Samkeppniseftirlitið hreyfi sig á hraða snigilsins. Eina stofnunin sem gefi sig að ástandinu sé Eftirlitsstofnun EFTA (ESA).
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.