Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, sem sumir af starfsmönnum Reykjavíkurborgar eru skráðir í, segir að nokkrir af fyrrverandi starfmönnum borgarinnar hafi þegar haft samband við stéttarfélagið.
Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar var sagt upp eða fært til í starfi í dag.
Kári staðfestir að Sameyki hafi verið tilkynnt um uppsögnina fyrirfram samkvæmt lögum um hópuppsagnir sem tilkynntar eru til Vinnumálastofnunar. Hann kvaðst þó ekki geta veitt upplýsingar um umfang uppsagnanna. Þegar leitað var staðfestingar hjá Vinnumálastofnun fengust upplýsingar um málið ekki upp gefnar.
Von er á frekari upplýsingum frá Reykjavíkurborg síðdegis.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skrifstofa samskipta og viðburða verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir. Þá var öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp.