Frá þessu er greint í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Þriggja manna hæfnisnefnd, sem er skipuð á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til 5 ára.
Umsækjendur eru útlistaðir hér í stafrófsröð:
- Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi
- Jón Magnús Eyþórsson, tölvunarfræðingur
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur
- Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri
Guðjón Hauksson hefur gegnt starfi forstjóra HSA síðustu ár en hann tók nýverið við stjórnartaumum Sjúkrahússins á Akureyri.