Uppsagnir enn í gangi: Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar
Enn er verið að segja upp starfsfólki borgarinnar á fundum með borgarritara. Tvö svið að minnsta kosti lögð niður og fleiri uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra.
Uppsagnir standa enn yfir hjá Mannréttindaráði Reykjavíkurborgar samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar þegar þetta er ritað, en ráðið verður lagt niður að því er RÚV greindi frá. Ákvörðunin var tekin á fundi borgarráðs í hádeginu en borgarstjórn mun útskýra atburði dagsins frekar eftir fund borgarráðs klukkan fjögur í dag.
Umfangsmiklar skipulagsbreytingar eru á döfinni innan Ráðhúss Reykjavíkur á fleiri sviðum innan skrifstofu borgarstjóra. Þannig stendur til að breyta eða leggja niður stefnumótunar- og þróunarteymi borgarinnar, en verkefnin þar voru að hluta til undir atvinnu- og borgarþróun sem var lagt niður í þeirri mynd fyrir ári.
Á vef borgarinnar segir að stefnumótunar- og þróunarteymi styðji við framgang áherslumála borgarstjóra og taki þátt í verkefnum sem kalla á þróun, stefnumótun eða samhæfingu ásamt umsjón alþjóðlegra rannsókna- og nýsköpunarverkefna. Teymið leiðir samhæfingu stefnumótunar innan Reykjavíkurborgar og hefur umsjón með innleiðingu og eftirfylgni á Græna planinu, lýðheilsustefnu, …