„Um er að ræða tölvupóst sem berst frá „Netglæpalögregla“ sem ber heitið „Síðasta viðvörun – þetta getur leitt til handtöku“. Þessi tölvupóstur er sagður vera frá „Aðalstjórstjórn Alþjóðalagalöggu“ þar sem fjallað er um „Dómsköfnun“,“ segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.
Þar kemur fram að í póstinum séu móttakendur beðnir um að svara með tölvupósti á þar til greint netfang.
„Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem eiga að varða greiðslur eða svara tölvupóstum sem þessum. Fólki er ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Þá kemur einnig fram að telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum geti það haft samband við lögreglu og sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.