Íslenskur iðnaður hefur vaxið og styrkst gríðarlega á síðustu 10-15 árum. Ný grein, hugverkaiðnaður hefur í raun tekið keflið af ferðaþjónustunni sem öflugasti vaxtarsprotinn meðal útflutningsgreina og skilaði í fyrra jafnmiklum útflutningsverðmætum og sjávarútvegur. Hins vegar kreppir að í hagkerfinu, háir vextir og verðbólga bíta og hefur þetta sérstaklega áhrif í byggingariðnaði. Erlend staða þjóðarbúsins er þó góð og öflugur iðnaður tryggir að staðan er betri en ella. Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Þorsteinn Víglundsson: Hugverkaiðnaðurinn búinn að ná sjávarútveginum