Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir skamman fyrirvara hafa verið á uppsögnunum. Hún óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa gögn fyrir fund borgarráðs í morgun.
Tillaga borgarstjóra um skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara var samþykkt í borgarráði í morgun. Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp.
„Ég sé ekki að þetta sé einhver niðurstaða sem skili góðri niðurstöðu fyrir Reykjavík eða borgarbúa,“ segir Sanna. Henni finnst skorta heildasýn á tilgang uppsagnanna.
„Þetta er ákveðinn skellur og rétt að þakka öllu starfsfólki Reykjavíkurborgar, sem hefur verið að sinna mikilvægum verkefnum, fyrir þeirra störf,“ segir Sanna.