„Þetta er erfiður dagur í ráðhúsinu í dag,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar. „Það er aldrei gaman að segja upp fólki.“
Skipulagsbreytingar sem á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara sem samþykktar voru í borgarráði í dag hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofunum. „Ég óttast að þetta sé bara byrjunin,“ segir Pétur.
Uppsagnirnar koma ekki á óvart. Viðbúið sé að nýr meirihluti vilji gera breytingar.
Í bókun Samfylkingarinnar segir að það sé áhyggjuefni hvaða málaflokkar verða fyrir niðurskurðarhnífnum í þessum sömu breytingum.
Pétur segir erfitt að horfa upp á að Mannréttindaskrifstofa borgarinnar og mannréttindaráð verði lögð niður. „Á tímum þegar mannréttindi eiga undir högg að sækja í heiminum.“