Samfylkingin reyndi að lægja öldur innan flokksins á fundi í gær þar sem ný lög um brottvísunarstöð voru rædd. Fjöldi flokksmanna hefur lýst yfir mikilli óánægju með lögin.
Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar fór yfir efni laganna á fundinum og meðferð málsins á Alþingi. Hann segir yfir hundrað manns hafa sótt fundinn þar sem gott andrými hafi verið til að fara á dýptina í umræðunni.
Hann segir fundi eins og þennan mikilvæga fyrir samtalið innan flokksins. „Það voru þarna mjög málefnalegar umræður og fjöldi fólks sem tók til máls og fór vel yfir þær áhyggjur sem menn hafa af þessu,“ segir Víðir.
„Innan Samfylkingarinnar er mikið af fólki sem þekkir þennan málaflokk vel, hefur unnið í honum, bæði sem sjálfboðaliðar, lögfræðingar og embættismenn í kerfinu. Þannig að það var farið vel yfir kosti og galla málsins. Eftir á og eftir fundinn held ég að fólk hafi verið sáttara með stöðina og það gengu allir sáttir frá fundinum,“ segir hann.
Pláss fyrir mörg sjónarmið í Samfylkingunni
„Það komu auðvitað fram mismunandi sjónarmið sem er eðlilegt í félagsskap eins og Samfylkingunni þar sem er pláss fyrir mörg sjónarmið.“
Nú reyni á framkvæmdina á málinu. Í frumvarpinu er bráðabirgðaákvæði um að ráðherra eigi að skila skýrslu eftir ár um hvernig framkvæmd laganna hafi gengið. Hann segir það hafa skipt miklu máli að koma þessu að á fundinum.
„Bæði að fólk upplifði það að við hefðum raunverulegan áhuga á því að fylgja málinu eftir og við hlustuðum vel á þær áhyggjuraddir sem eru um framkvæmdina.“
Gagnrýnendur sáttir með fundinn
Gagnrýnendur brottvísunarbúðanna eru sáttir við fundinn að sögn Þórarins Snorra Sigurgeirssonar, fyrrverandi ritara Samfylkingarinnar, sem er einn af hvatamönnum opna bréfsins þar sem fjöldi félaga í Samfylkingunni og annarra jafnaðarmanna mótmæltu lögum um brottvísunarbúðir.
Hann segist ánægður með jákvæð og skjót viðbrögð flokksins við gagnrýninni. Það sé ekki sjálfsagt að blása til fundar með svo skömmum fyrirvara, sérstaklega þar sem svo góður tími gefist fyrir umræðu.
„Þarna fór fram mjög málefnaleg og heiðarleg umræða um bæði efnistök málsins og hvernig þingflokkur okkar nálgaðist málið,“ segir Þórarinn.
Fólk ekki sannfært um brottvísunarstöð
Ólíkar skoðanir séu þó enn innan flokksins um brottvísunarstöð.
„Ég held að fólk hafi ekki farið af þessum fundi sannfært um að þetta hafi verið frábær niðurstaða,“ segir Þórarinn. „Okkar sjónarmiði hefur verið komið rækilega á framfæri.“
Á fundinum lýsti Víðir vonum um að brottvísunarstöðina þyrfti lítið sem ekkert að nota. Þórarinn segir flokkinn samhentan í að tryggja að þessar vonir verði að veruleika, meðal annars með betra eftirliti og uppbyggingu á mildari úrræðum.
Allir hafi sammælst um það að málið yrði rætt frekar innan flokksins.