Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsóknarfrestur rann út 22. júní. Þessu er greint frá í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Umsækjendurnir eru:
- Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
- Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi
- Jón Magnús Eyþórsson, tölvunarfræðingur
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur
- Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri
Þriggja manna hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar og skilar ráðgefandi áliti til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til fimm ára.