Umfangsmiklar uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur – Fækka starfsfólki um 40%

Umfangsmiklar uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur – Fækka starfsfólki um 40%

Umfangsmiklar uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur – Fækka starfsfólki um 40%

Sanna Magdalenu Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, setur spurningamerki við að útvista verkefnum sem upplýsingafulltrúar, og annað starfsfólk sem sagt var upp störfum í dag, sinnti.

„Maður veltir því fyrir sér hvort þetta muni skila einhverju eða hagræða til lengri tíma þegar verið er að treysta á utanaðkomandi aðila til þess að sjá um verkefni sem starfsfólk innan borgarinnar hefur sinnt og hefur byggt upp reynslu og þekkingu á þessum málefnum.“

Sanna segir skamman fyrirvara hafa verið á uppsögnunum. Hún óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa gögn fyrir fund borgarráðs í morgun.

Hún er efins um árangur uppsagnanna.

„Ég sé ekki að þetta sé einhver niðurstaða sem skili góðri niðurstöðu fyrir Reykjavík eða borgarbúa,“ segir Sanna. Henni finnst skorta heildasýn á tilgang uppsagnanna.

Mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð verða lögð niður og lögbundin verkefni áfram tryggð og færð nær þeim sviðum sem sinna viðkomandi þjónustu.

Borgarráð mun fara með jafnréttismál sveitarfélagsins. Verkefni sem tengjast innflytjendum, fólki af erlendum uppruna, ofbeldisvörnum og Bjarkarhlíð verða færð til velferðarsviðs.

Verkefni sem snúa að hinsegin fræðslu og stuðningi við hinsegin börn og ungmenni verða færð til skóla- og frístundasviðs.

Jafnframt verður stofnað öldunga- og aðgengisráð Reykjavíkurborgar sem sinnir lögbundnu samráðs- og ráðgjafarhlutverki gagnvart eldra fólki og fötluðu fólki.

Stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verður lagt niður. Helstu verkefnum á borð við rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna plani verður hætt.

Atvinnuþróun mun færast til umhverfis- og skipulagssviðs og ytri nýsköpun til þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Verkefni á borð við samhæfingu stefnumótunar, persónuvernd og alþjóðamál verða áfram á skrifstofunni en með breyttum áherslum.

Eftirfarandi er haft eftir Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar. Það er eðlilegt að ég horfi fyrst til þeirra verkefna sem standa mér næst í þeim efnum, hér á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

Þessar ákvarðanir eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð. Rekstur borgarinnar stendur hins vegar að óbreyttu ekki undir lögbundinni þjónustu, nauðsynlegum fjárfestingum og mikilvægu viðhaldi innviða. Þess vegna reynast þessar aðgerðir nauðsynlegar. Nýr meirihluti mun halda áfram að velta við öllum steinum til að ná fram markmiðum okkar um hagræðingu og bætta þjónustu við íbúa.

Samhliða breytingum á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, sem kynntar voru í dag, verður skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Dregið verður úr ferðalögum borgarstarfsmanna og nýtt verklag innleitt þar sem ferðaheimildir skulu samþykktar af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.

Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi frá og með 1. júlí. Á næstu vikum og mánuðum verða frekari tillögur er snúa að rekstri borgarinnar kynntar af hagræðingarhópi borgarstjóra sem er að störfum.

Uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara eru liður í markmiðum hagræðingarhóps meirihlutans.

Áætlað er að breytingarnarnar geti lækkað rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ársgrundvelli þegar innleiðingu skipulagsbreytinganna er að fullu lokið.

Skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofunum. Tillaga borgarstjóra var samþykkt á fundi borgarráðs í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

18 störf verða lögð niður en gert er ráð fyrir að ráðið verði í einhver ný störf eftir því sem innleiðingunni vindur fram auk þess sem verkefnum verður útvistað. Níu starfsmenn verða fluttir milli sviða.

Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40% samkvæmt tilkynningunni.

Talsvert hefur verið fjallað um störf – og einkum fjölda – upplýsingafulltrúa hjá borginni á undanförnum árum.

Árið 2023 var fjallað um að alls væru þeir 17 talsins, þar af átta í upplýsingadeild Ráðhússins og níu til viðbótar sem skiptust á sjö svið borgarinnar.

Marta Guðjónsdóttir, þáverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, lagði fram hagræðingartillögu um að skrifstofa samskiptateymisins yrði lögð niður árið 2023. Kostnaður við skrifstofuna hafi þá numið um 190 milljónum króna á ári.

Sex upplýsingafulltrúar störfuðu hjá borginni þegar tilkynnt var um uppsagnir í dag, auk samskiptastjóra. Þeir störfuðu allir á skrifstofu samskipta og viðburða í ráðhúsinu, sem nú hefur verið lögð niður. Á sviðinu störfuðu tveir almennir upplýsingafulltrúar, einn á velferðarsviði, tveir hjá umhverfis- og skipulagssviði og einn hjá skóla- og frístundasviði.

Ef þú ert með upplýsingar eða ábendingar um málið máttu gjarnan senda á frettir@ruv.is eða hafa samband í síma 515-3030.

Skrifstofa samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg hefur verið lögð niður og öllum upplýsingafulltrúum verið sagt upp.

Ekki var óskað eftir því að þeir ynnu uppsagnarfrest.

Á skrifstofu samskipta og viðburða störfuðu alls 14 manns, samkvæmt vef Reykjavíkurborgar: samskiptastjóri, sex upplýsingafulltrúar, þrír verkefnastjórar viðburða, verkefnastjóri miðlunar, ljósmyndari og tveir myndbandsgerðarmenn. Samkvæmt heimildum fréttastofu var tíu manns sagt upp

Ekki liggur fyrir hve mörgum hefur verið sagt upp í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Formaður Sameykis staðfestir að félaginu hafi verið tilkynnt um uppsögnina fyrirfram samkvæmt lögum um hópuppsagnir sem tilkynntar eru til Vinnumálastofnunar.

Skilgreining Vinnumálastofnunar á hópuppsögn er eftirfarandi:

  • að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtæki sem venjulega hafa fleiri en 20 og færri en 100 starfsmenn í vinnu,
  • að minnsta kosti 10% starfsmanna í fyrirtæki sem venjulega hefur hið minnsta 100 starfsmenn, en færri en 300 starfsmenn í vinnu.
  • að minnsta kosti 30 starfsmenn í fyrirtæki sem venjulega hafa 300 starfsmenn eða fleiri í vinnu.

Uppsagnir hjá fyrirtæki með 19 starfsmenn eða færri falla því ekki undir reglur um hópuppsagnir, jafnvel þótt 10 starfsmönnum eða fleiri sé sagt upp.

Frekari upplýsinga um uppsagnirnar er að vænta síðdegis. Borgarstjóri og þeir borgarfulltrúar sem fréttastofa hefur náð tali af ætla ekki að tjá sig fyrr en eftir að fundargerð borgarráðs hefur verið birt, en borgarráð samþykkti skipulagsbreytingarnar á fundi sínum í morgun.

Þá verður einnig send út fréttatilkynning um málið eftir að fundargerðin hefur verið birt.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur ítrekað lagt til að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar verði lögð niður.

Á verkefnalista meirihlutans kemur fram að meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks ætli að „færa nauðsynleg verkefni mannréttindaskrifstofu yfir á velferðarsvið og ráðast í skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra“ innan 100 daga í meirihlutastarfi.

„Þangað fara nokkur hundruð milljónir á ári hverju og við erum eina sveitarfélagið sem rekur mannréttindaskrifstofu. Ég veit ekki til þess að mannréttindi séu fótum troðin í Garðabæ eða Hafnarfirði eða Mosfellsbæ þótt þar sé ekki starfrækt slík skrifstofa,“ sagði Hildur í Silfrinu í mars.

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, sem sumir af starfsmönnum Reykjavíkurborgar eru skráðir í, segir dæmi um fyrrverandi starfsmenn borgarinnar sem hafa þegar hafa haft samband við stéttarfélagið.

Hann staðfestir að Sameyki hafi verið tilkynnt um uppsögnina fyrirfram samkvæmt lögum um hópuppsagnir sem tilkynntar eru til Vinnumálastofnunar.

Hann kvaðst þó ekki geta veitt upplýsingar um umfang uppsagnanna.

Ekki hefur náðst í fulltrúa í borgarráði, borgarritara né borgarfulltrúa Viðreisnar, Róbert Ragnarsson, sem leiðir hagræðingarhóp meirihlutans.

Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkurborgar hefur verið sagt upp eða fært til í starfi.

  • Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skrifstofa samskipta og viðburða verið lögð niður. Starfsfólki var ýmist sagt upp eða það fært undir aðrar deildir.
  • Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar var sagt upp.
  • Þá herma heimildir fréttastofu einnig að Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar hafi verið lögð niður. Heimildir herma að nokkrum hafi verið sagt upp og þrír færðir til í starfi.
  • Stefnumótunar- og þróunarteymis skrifstofu borgarstjóra hefur einnig verið lagt niður samkvæmt heimildum.
  • Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun.
  • Ekki liggur fyrir hvort fleiri breytingar á innri starfsemi borgarinnar hafi verið samþykktar í dag.

Ég heiti Iðunn Andrésdóttir og mun færa ykkur nýjustu fregnir af nýjustu vendingum hér í þessari fréttavakt.

#fækka #reykjavíkur #ráðhúsi #umfangsmiklar #uppsagnir


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-06-25-umfangsmiklar-uppsagnir-i-radhusi-reykjavikur-faekka-starfsfolki-um-40-479432

📰 Aðrar fréttir

Hefja brottvísanir fanga fyrir mánaðamót
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hefja brottvísanir fanga fyrir mánaðamót
Níu föngum verður vísað úr landi á næstu tveimur vikum. Það er gert í skjóli heimildar til að brottvísa erlendum föngum eftir að þeir hafa afplánað þr...
Vilhelm Jónsson skrifar: Getur Reykjavíkurborg ekki farið með olíufélögin eins og hún fer með Samhjálp?
📅 25.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Getur Reykjavíkurborg ekki farið með olíufélögin eins og hún fer með Samhjálp?
Það er með ólíkindum að árið 2026 skuli enn vera deilt um hvar kaffistofa Samhjálpar eigi að vera staðsett.Ekki vegna þess að starfsemin sé ný.Ekki ve...
Halldór Jörgen Olesen skrifar: Heimildavinna, gerendahæfni og rangar tölur
📅 25.06.2026 👁️ 0
Halldór Jörgen Olesen skrifar: Heimildavinna, gerendahæfni og rangar tölur
Í grein á Vísi 24. júní gerir Erna Bjarnadóttir hagfræðingur athugasemd við að Pawel Bartoszek hafi sótt mat á umfangi tollfrelsis til gervigreindarin...
Kristján segir Íslandsbanka tala niður til eldri borgara í markpósti - „Ég er ekki sex ára“
📅 25.06.2026 👁️ 0
Kristján segir Íslandsbanka tala niður til eldri borgara í markpósti - „Ég er ekki sex ára“
Kristjáni Logasyni barst í vikunni markpóstur frá Íslandsbanka sem kom honum nokkuð á óvart. Þar var eldri viðskiptavinum boðið að koma í svokallað tæ...
Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapp­hlaup við tímann í Venesúela - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 0
Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapp­hlaup við tímann í Venesúela - Vísir
Við ræðum þessar breytingar við Hildi Björnsdóttur borgarstjóra í fréttatímanum klukkan 18.30 í kvöld og heyrum líka í fleiri borgarfulltrúum.  Þá mæt...
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 0
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann - Vísir
Er þetta meðal þess helsta sem var skráð í dagbók lögreglu frá því klukkan fimm í morgun en að minnsta kosti þrír gistu í fangageymslu lögreglunnar í ...
„Mann­réttindi ekkert fitu­lag“ - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 0
„Mann­réttindi ekkert fitu­lag“ - Vísir
Átján störf verða lögð niður og níu störf færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. Skrifstofa samskipta og viðburða, mannréttindaskrifstofa ...
Til skoðunar að bæta við neyðarnúmeri
📅 25.06.2026 👁️ 0
Til skoðunar að bæta við neyðarnúmeri
Til skoðunar er að setja upp sjö stafa símanúmer í Neyðarlínuna á meðan enn eru tæki í umferð sem ekki ná sambandi við hana. Þegar slökkt var á 2G- og...
RÚV braut lög í falsfrétt um Pál skipstjóra
📅 25.06.2026 👁️ 0
RÚV braut lög í falsfrétt um Pál skipstjóra
RÚV braut lög í falsfrétt um Pál skipstjóra Fréttin25. júní 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll Vilhjálmsson, RÚVLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: ...
Átta­tíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 0
Átta­tíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katarska ríkismiðilsins Al JAzeera en júníhitamet hefur einnig verið slegið í Bretlandi. Þar hefur hiti...
Vilja byggja upp nýtt og minna samskiptateymi í borginni
📅 25.06.2026 👁️ 0
Vilja byggja upp nýtt og minna samskiptateymi í borginni
„Það fylgir auðvitað mínu starfi að taka erfiðar ákvarðanir,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri um umfangsmiklar uppsagnir á skrifstofu hennar og...
Lögregla naut aðstoðar sérsveitar undir Esjunni
📅 25.06.2026 👁️ 0
Lögregla naut aðstoðar sérsveitar undir Esjunni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í aðgerð undir Esjunni fyrir skömmu. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafu...
Hand­tekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 0
Hand­tekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni - Vísir
Tilefni handtökunnar liggur ekki fyrir. Á myndefni má sjá tvo ómerkta lögreglubíla og einn merktan, auk nokkurra einkennisklæddra lögregluþjóna og hið...
Auka reglubundið rafmagnsleysi vegna árása Úkraínuhers
📅 25.06.2026 👁️ 0
Auka reglubundið rafmagnsleysi vegna árása Úkraínuhers
Yfirvöld á Krímskaga ætla að auka við reglubundið rafmagnsleysi hjá íbúum þar vegna fleiri árása úkraínska hersins á orkuinnviði. Tilgangurinn er að v...
Tillaga borgarstjóra: Leggur niður teymi, ráð og tvær skrifstofur
📅 25.06.2026 👁️ 0
Tillaga borgarstjóra: Leggur niður teymi, ráð og tvær skrifstofur
Tillaga borgarstjóra um að leggja niður tvær skrifstofur, mannréttindaráð og stefnumótunar- og þróunarteymi var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Í f...
Óttast að fleiri uppsagnir séu í uppsiglingu
📅 25.06.2026 👁️ 1
Óttast að fleiri uppsagnir séu í uppsiglingu
„Þetta er erfiður dagur í ráðhúsinu í dag,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar. „Það er aldrei gaman að segja upp fólki.“Skipulagsbrey...
Sindri gerðist trukkabílstjóri - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Sindri gerðist trukkabílstjóri - Vísir
Til að hljóta ökuréttindi fyrir vörubíla þarf ökumaður að standast bæði bóklegt og skriflegt próf. Búast má við að ferlið kosti í heildina um 450 þúsu...
Greta Salóme og Elvar Þór opinbera kynið
📅 25.06.2026 👁️ 1
Greta Salóme og Elvar Þór opinbera kynið
Hjónin, Greta Salóme Stefánsdóttir, tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, eiga von á sínu þriðja barni ...
Þorsteinn Víglundsson: Hugverkaiðnaðurinn búinn að ná sjávarútveginum
📅 25.06.2026 👁️ 1
Þorsteinn Víglundsson: Hugverkaiðnaðurinn búinn að ná sjávarútveginum
Íslenskur iðnaður hefur vaxið og styrkst gríðarlega á síðustu 10-15 árum. Ný grein, hugverkaiðnaður hefur í raun tekið keflið af ferðaþjónustunni sem ...
Leggja niður 18 störf og skerpa á ráðningarbanni og viðveruskyldu -„Ég hét því að gera breytingar “
📅 25.06.2026 👁️ 1
Leggja niður 18 störf og skerpa á ráðningarbanni og viðveruskyldu -„Ég hét því að gera breytingar “
Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í að ná fram hagræðingu o...
Fjárhagsstaða hefur meiri áhrif á líðan en áður
📅 25.06.2026 👁️ 1
Fjárhagsstaða hefur meiri áhrif á líðan en áður
Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu, svefni, streitu, einmanaleika, hamingju og velsæld fullorðinna á...
Sanna óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa gögn um uppsagnir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Sanna óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa gögn um uppsagnir
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir skamman fyrirvara hafa verið á uppsögnunum. Hún óskaði eftir „smá andrými“ til að lesa ...
Gagnrýnendur ekki sannfærðir um brottvísunarstöð eftir fund
📅 25.06.2026 👁️ 1
Gagnrýnendur ekki sannfærðir um brottvísunarstöð eftir fund
Samfylkingin reyndi að lægja öldur innan flokksins á fundi í gær þar sem ný lög um brottvísunarstöð voru rædd. Fjöldi flokksmanna hefur lýst yfir miki...
Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí - Vísir
Strax og greint hafði verið frá vali framleiðenda á Paul sem einhleypu seríunnar greindi Vísir frá því að valið þætti umdeilt og átti málið sannarlega...
Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent - Vísir
Þetta segir í skriflegri yfirlýsingu frá Reykjavíkurborg en hún er undirrituð af borgarritara Þorsteini Gunnarssyni.  Eins og greint hefur verið frá v...
Andrea segir Bílastæðasjóð gera í því að sekta á meðan foreldrar sækja á leikskólann
📅 25.06.2026 👁️ 1
Andrea segir Bílastæðasjóð gera í því að sekta á meðan foreldrar sækja á leikskólann
Foreldri barns á leikskóla í Bríetartúni í Reykjavík segir Bílastæðasjóð gera í því að mæta kl. 16:00 á virkum dögum og sekta foreldra sem eru að sækj...
Mikið lagt í farsímasamband á Bergmáli
📅 25.06.2026 👁️ 1
Mikið lagt í farsímasamband á Bergmáli
Fjarskiptafélögin höfðu í nógu að snúast til að tryggja framúrskarandi farsímasamband á tónleikum Kaleo, Bergmáli, á Þingvöllum síðustu helgi.
Vara við net­svikum í nafni „net­glæpalög­reglunnar“ - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 2
Vara við net­svikum í nafni „net­glæpalög­reglunnar“ - Vísir
„Um er að ræða tölvupóst sem berst frá „Netglæpalögregla“ sem ber heitið „Síðasta viðvörun – þetta getur leitt til handtöku“. Þessi tölvupóstur er sag...
Andy Burnham could be leader in weeks under Labour timetable
📅 25.06.2026 👁️ 1
Andy Burnham could be leader in weeks under Labour timetable
Andy Burnham could take over from Keir Starmer by 17 July, if he continues to be the only Labour MP in the race.
Ernu Athichu enn leitað
📅 25.06.2026 👁️ 1
Ernu Athichu enn leitað
Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu leitar enn Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára stúlku. Hennar hefur verið saknað í það minnst frá því á mánudaginn.Erna er ...
Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: Starfsfólki fækkar um 40 prósent
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: Starfsfólki fækkar um 40 prósent
Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: Starfsfólki fækkar um 40 prósent „Ég hét því að gera breyt­ing­ar og taka til hend­inni í rekstri borg­ar­inn­ar,“ sagði...
Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: „Ég hét því að gera breytingar“
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: „Ég hét því að gera breytingar“
Hópuppsögn Reykjavíkurborgar: „Ég hét því að gera breytingar“ „Ég hét því að gera breyt­ing­ar og taka til hend­inni í rekstri borg­ar­inn­ar,“ sagði ...
Fimm vilja stýra HSA - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Fimm vilja stýra HSA - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Þriggja manna hæfnisnefnd, sem er skipuð á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfs...
Tjörvi Schiöth segir vók hafa fælt verkafólk frá vinstrinu: „Þeir vilja bara kjósa með veskinu“
📅 25.06.2026 👁️ 1
Tjörvi Schiöth segir vók hafa fælt verkafólk frá vinstrinu: „Þeir vilja bara kjósa með veskinu“
Í nýjasta þætti Spjallsins tók Frosti Logason á móti tveimur ólíkum gestum sem fáir hefðu líklega búist við að sætu saman við sama borð: Guðjóni Heiða...
Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands
📅 25.06.2026 👁️ 1
Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Fimm sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Umsóknarfrestur rann út 22. júní. Þessu er greint frá í tilkynningu á vef Stjórnarrá...
Vara við að­skota­efni í tei - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Vara við að­skota­efni í tei - Vísir
Í tilkynningu frá Matvælastofnun varar stofnunin við neyslu á einni framleiðslulotu af Malwa-tei frá Tee Herbatjka zionkowa sem Mini market ehf. flytu...
Prosecutors drop outstanding rape case against Harvey Weinstein
📅 25.06.2026 👁️ 1
Prosecutors drop outstanding rape case against Harvey Weinstein
The case had already been tried three times, and accuser Jessica Mann said she does not wish to go through with a fourth trial.
Geta ekki slegið föstu hvort drónar hafi flogið yfir Kaupmannahöfn
📅 25.06.2026 👁️ 1
Geta ekki slegið föstu hvort drónar hafi flogið yfir Kaupmannahöfn
Danska lögreglan getur ekki staðfest að drónar hafi verið á flugi yfir flugvellinum í Kaupmannahöfn í september þegar lokað var á flugumferð í fjóra k...
Af hverju eru ESB-viðræður óskynsamlegar á þessum tímapunkti?
📅 25.06.2026 👁️ 1
Af hverju eru ESB-viðræður óskynsamlegar á þessum tímapunkti?
Af hverju eru ESB-viðræður óskynsamlegar á þessum tímapunkti? Í ljósi efna­hags­legr­ar og póli­tískr­ar óvissu um þró­un ESB, og þess að að­ild­ar­vi...
Campervan owners challenge signs showing parking restrictions
📅 25.06.2026 👁️ 1
Campervan owners challenge signs showing parking restrictions
ACAT, the Canary Islands Association of Motorhomes and Campervans, has formally asked Arona Town Hall to explain the legal basis for parking signs tha...
Supreme Court allows Trump to end protected status for Haitian and Syrian migrants
📅 25.06.2026 👁️ 1
Supreme Court allows Trump to end protected status for Haitian and Syrian migrants
Thr ruling opens the path for the Trump administration to deport hundreds of thousands of immigrants who have been living in the US for years.
Hart deilt: „Arðrán hvala nemur milljónum tonna á ári“ – „Drepum allt sem við getum til að fá peninga“
📅 25.06.2026 👁️ 1
Hart deilt: „Arðrán hvala nemur milljónum tonna á ári“ – „Drepum allt sem við getum til að fá peninga“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að það þurfi að ræða hvalveiðar með vísindum en ekki tilfinningum, arðrán hvala á fiski...
Drífa segir hræðilegt að leggja niður mannréttindaskrifstofuna: „Hvað verður um hinseginmálin í miðju bakslagi?“
📅 25.06.2026 👁️ 1
Drífa segir hræðilegt að leggja niður mannréttindaskrifstofuna: „Hvað verður um hinseginmálin í miðju bakslagi?“
Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir lokun mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar hræðilegar fréttir.
Nýjar vendingar í máli Taílands-fangans – Freista þess að fá hann leystan úr haldi
📅 25.06.2026 👁️ 1
Nýjar vendingar í máli Taílands-fangans – Freista þess að fá hann leystan úr haldi
Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall maður frá Akureyri, situr í gæsluvarðhaldi í borginni Phuket á Taílandi og bíður málsmeðferðar vegna kæru um ...
Þriggja ára barn dó úr hita
📅 25.06.2026 👁️ 1
Þriggja ára barn dó úr hita
Þriggja ára barn dó úr hita Ann­að barn fannst lát­ið í Frakklandi eft­ir að hafa læst sig inni í bíl með barna­læs­ingu. For­dæma­laus hiti er í Evr­...
Lauf­ey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn - Vísir
📅 25.06.2026 👁️ 1
Lauf­ey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn - Vísir
Charlie starfar innan tónlistarbransans í Bandaríkjunum en Laufey eyðir miklu af tíma sínum þar vestra.  „Til hamingju með afmælið, hamingjusamasta ma...
Fyrst Evrópuþjóða til að slökkva alveg á 2G og 3G
📅 25.06.2026 👁️ 1
Fyrst Evrópuþjóða til að slökkva alveg á 2G og 3G
Ísland er fyrsta þjóðin í Evrópu til þess að slökkva alveg á 2G- og 3G-sendum. Ástralía var fyrsta landið í heiminum og mörg lönd eru langt komin í út...
Sameyki tilkynnt fyrirfram um uppsagnir hjá borginni
📅 25.06.2026 👁️ 1
Sameyki tilkynnt fyrirfram um uppsagnir hjá borginni
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, sem sumir af starfsmönnum Reykjavíkurborgar eru skráðir í, segir að nokkrir af fyrrverandi starfmönnum borgarinnar...
Vara við ferðum í fordæmalausri hitabylgju í Þýskalandi
📅 25.06.2026 👁️ 1
Vara við ferðum í fordæmalausri hitabylgju í Þýskalandi
Vara við ferðum í fordæmalausri hitabylgju í Þýskalandi Þjóð­verj­ar af­lýsa við­burð­um og lest­ar­mið­ar eru end­ur­greidd­ir vegna hita­bylgj­unn­a...
Uppsagnir enn í gangi:  Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar
📅 25.06.2026 👁️ 1
Uppsagnir enn í gangi: Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar
Uppsagnir enn í gangi: Skipulagsbreytingar borgarinnar umfangsmiklar Enn er ver­ið að segja upp starfs­fólki borg­ar­inn­ar á fund­um með borg­ar­rit­...