Í tilkynningu frá Matvælastofnun varar stofnunin við neyslu á einni framleiðslulotu af Malwa-tei frá Tee Herbatjka zionkowa sem Mini market ehf. flytur inn. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað vöruna, að sögn Mast.
Tilkynningin hafi borist til Íslands í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli og fóður.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Malwa
- Vöruheiti: Tee Herbatka ziołowa Morwa biała
- Geymsluþol: 31/07/2027
- Strikamerki: 5902781001984
- Nettómagn: 40 g
- Framleiðsluland: Pólland
- Innflytjandi: Mini market, Drafnarfell 14, 111 Reykjavík.
- Dreifing: Mini market, Drafnarfell 14, 111 Reykjavík.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.