Tillaga borgarstjóra um að leggja niður tvær skrifstofur, mannréttindaráð og stefnumótunar- og þróunarteymi var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Í fundargerðinni kemur fram ítarlegri útfærsla á breytingunum sem fjallað hefur verið um í dag.
Skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara hafa áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofunum. 18 störf verða lögð niður.
Leggja niður störf í stefnumótunar- og þróunarteymi
Öll störf í stefnumótunar- og þróunarteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verða lögð niður nema tvö. Helstu verkefnum svo sem rannsóknarþjónustu, verkefnastýringu lýðheilsumála og Græna planinu verður hætt.
Þá verða verkefni atvinnuþróunar- og ytri nýsköpunar færð yfir á önnur svið. Samhæfing stefnumótunar, persónuvernd og alþjóðamál verða áfram á skrifstofunni en þróuð áfram.
Í greinargerð segir að markmiðið sé að fækka ólögbundnum verkefnum, gera stjórnsýslu skilvirkari og draga úr kostnaði. Sparnaður á ári við að leggja niður teymi stefnumótunar- og þróunar er talinn vera 80-100 milljónir króna.
Nýtt stjórnskipulag samskiptamála
Öllum upplýsingafulltrúum var sagt upp í dag en borgin ætlar að byggja upp nýtt stjórnskipulag samskiptamála frá grunni með helmingi færri störfum.
Samþykkt var á fundi borgarráðs að skrifstofa samskipta- og viðburða yrði lögð niður. Öll störf þar eru lögð niður nema þrjú sem snúa að viðburðarhaldi borgarinnar. Þá verður starf hjá Mixtúru fært yfir til skóla- og frístundasviðs.
Verkefnum verður útvistað og borgarstjóri leggur til að byggt verði upp fagteymi með hæfni á sviði markaðssetningar, samfélagsmiðla og samskiptamála.
Í greinargerð segir að markmiðið sé að hagræða, útvista verkefnum og leggja niður störf upplýsingafulltrúa. Er vísað til þess að aukin krafa sé um gagnadrifna miðlun í samfélaginu.
„Samanburðarannsóknir á opinberum samskiptum benda til að íbúar geri í auknum mæli kröfu um hraðari viðbrögð í rauntíma, gagnvirk samskipti fremur en einhliða tilkynningar og sérsniðna og aðgengilega upplýsingagjöf,“ segir þar.
Áætluð hagræðing við það að leggja niður skrifstofu samskipta- og viðburða er 90-120 milljónir króna á ári.
Leggja niður mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð
Þá var samþykkt á fundinum að leggja bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð niður. Helstu verkefni skrifstofunnar verða færð til borgarráðs, velferðarsviðs, skóla- og frístundasviðs, skrifstofu borgarstjórnar, forsætisnefndar og mannauðs- og starfsumhverfissviðs.
Borgarráð fer framvegis með jafnréttismál sveitarfélagsins í stað mannréttindaráðs. Tvö stöðugildi eru lögð niður og starf mannréttindastjóra færist til skrifstofu borgarstjórnar í breyttri mynd. Lögbundin verkefni verða áfram tryggð.
Verkefni sem snúa að málefnum innflytjenda, aðgerðum gegn ofbeldi og þátttöku Reykjavíkurborgar í verkefnunum Saman gegn ofbeldi og Bjarkarhlíð verða færð til velferðarsviðs og velferðarráðs.
Skóla- og frístundasvið tekur við hinsegin fræðslu og stuðningi við hinsegin börn og ungmenni auk annarrar sértækrar fræðslu.
Í greinargerð segir: „Tillögurnar fela því ekki í sér að dregið sé úr mikilvægi mannréttinda-, jafnréttis- eða aðgengismála heldur að ábyrgð á þeim verði færð nær þeim vettvangi þar sem þjónustan er veitt og ákvarðanir teknar.“
Áætluð hagræðing þessa liðar er talin vera allt að 120 milljónir króna á ári.
Samfylkingin hefur áhyggjur af niðurskurði til málaflokkanna
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram bókun þar sem þeir lýstu yfir áhyggjum af því hvaða málaflokkar yrðu fyrir áhrifum af breytingunum. Þeir sátu hjá við afgreiðslu málsins í borgarráði.
„Á tímum þar sem mannréttindi, jafnrétti, loftslagsmál og málefni innflytjenda eiga undir högg að sækja víðs vegar um heiminn og hér á landi, velur nýr meirihluti að leggja niður mannréttindaráð, mannréttindaskrifstofu, verkefnastýringu lýðheilsumála og stýringu Græna plansins,“ skrifa þeir.
Þeir segja að með því að færa jafnréttismál beint undir borgarráð gæti dregið úr pólitískum þunga og faglegri rýni á verkefnunum. „Það er ávallt sársaukafullt að sjá á eftir hæfu starfsfólki, en mestar áhyggjur höfum við af þeirri hugmyndafræðilegu stefnubreytingu sem þessi uppstokkun ber vitni.“
Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins bókaði að ekki væri fyrirséð hver kostnaðurinn og áhrif við samfellu verkefna verða þegar þeim er útvistað. Þá vakti hann athygli á því að tillagan hefði borist minnihluta með stuttum fyrirvara.