Borgarráð fundar um uppsagnir upplýsingafulltrúa
Nýr meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur sagt upp öllum upplýsingafulltrúum. Fundur borgaráðs stendur yfir en vænta má upplýsinga um ákvörðunina í kringum kl. 16.
Fundur borgarráðs stendur nú yfir en búast má við fundargerð í kringum kl. 16 varðandi uppsagnir upplýsingafulltrúa borgarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar fengu starfsmenn póst í morgun þar sem óskað var eftir samtali við þá. Starfsfólkið fór þá eitt í einu á fund með Þorsteini Gunnarssyni borgarritara sem tilkynnti uppsagnirnar. Heimildir mbl.is herma að viðtöl séu í gangi og verði líklega fram eftir degi.
Heimildin hafði samband við Evu Bergþóru Guðbergsdóttur, samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, sem gat ekki veitt viðtal að svo stöddu en henni var sagt upp í morgun.
Þá bað Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi blaðamann og upptökumann Heimildarinnar frá því að taka upp myndbönd í Ráðhúsinu þar sem um erfiðan dag fyrir margt starfsfólk væri að ræða. Hann gat ekki tjáð sig um málið að svo stöddu en benti á að eftir fund borgarráðs muni borgarstjórn geta veitt viðtöl um málið.