Nýr meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur lagt niður skrifstofu samskipta og viðburða vegna hagræðingaraðgerða og skipulagsbreytinga.
Samkvæmt heimildum mbl.is hefur öllum á skrifstofunni verið sagt upp störfum ásamt nokkrum starfsmönnum Ráðhússins en viðburðarteymið virðist þó ætla að halda störfum.
Heimildir mbl.is herma að viðtöl séu enn í gangi og verði það líklega fram eftir degi.
Fréttin verður uppfærð.