Íslendingar gætu nýtt eigin heilsufarsupplýsingar betur til að fylgjast með áhættuþáttum og koma fyrr auga á breytingar sem kunna að benda til veikinda. Þetta sagði Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, í Kastljósi kvöldsins.
Thor nefndi sérstaklega blóðþrýsting og blóðsykur, sem séu einfaldar mælingar en geti gefið mikilvægar upplýsingar ef þeim er fylgt eftir yfir tíma.
„Aðalatriðið er kannski að mæla hann nokkrum sinnum, búa sér til heilsusögu,“ sagði Thor um blóðþrýsting. Hann sagði reynslu úr rannsóknum Hjartaverndar hafa sýnt að algengt væri að fólk gengi um með of háan blóðþrýsting eða blóðsykur án þess að vita af því. Slíkir áhættuþættir geti leitt til sjúkdóma bæði eftir skemmri og lengri tíma.
Thor sagði einnig að þróun í gervigreind og mállíkönum gæti orðið mikilvægur hluti af stafrænni heilsu. Slík líkön geti lesið sjúkraskrá einstaklings eins og sögu og borið hana saman við mögulegan framgang sjúkdóma. „Þau koma ekki bara með spá um eina útkomu, bara hjartasjúkdóm eða sykursýki, heldur alla mögulega sjúkdóma,“ sagði Thor.
Hann sagði tæknina geta hjálpað til við að greina áhættu fyrr, en að einnig þyrfti að takast á við álitamál um persónuvernd og meðferð heilsufarsgagna.
Thor benti einnig á að notendur Heilsuveru geti nú þegar skráð þar meðal annars blóðþrýsting, blóðsykur, hæð og þyngd.
„Fólk ætti kannski að byrja að hugsa þetta aðeins öðruvísi, að fylgjast með hvernig mælingarnar breytast yfir tímann,“ sagði hann. Slíkar breytingar gætu verið vísbending um að eitthvað væri að gerast og mikilvægt væri að þekkja eðlileg viðmiðunargildi.
Hann telur Ísland einnig geta tekið stærri skref í stafrænni heilsu. Til þess þurfi ólík heilbrigðiskerfi að vinna betur saman og stofnanir að vera tilbúnar að deila gögnum.
„Við eigum að geta tekið svolítið skref í þessu,“ sagði Thor og nefndi möguleikann á að byggja upp íslenskan gagnabanka sem gæti orðið fyrirmynd að stafrænni heilsu í heiminum.
Í spilaranum hér að neðan má horfa á Kastljós kvöldsins í heild sinni. Rætt var við David Barzilai, lektor við Harvard Medical School. Hann sérhæfir sig í heilbrigðum æviárum, gagnreyndum forvörnum og framtíð heilbrigðiskerfa.