Aðgerðir sem forsætisráðherra boðaði í dag um að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum, meðal annars, er það sem var samið um fyrir tveimur árum þegar kjarasamningar voru undirritaðir. Þetta segir formaður VR. Forseti ASÍ segir
„Þó það nú væri“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag að hún ætlaði á morgun að fara fyrir ríkisstjórn með aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu ríkis, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um næstu skref til að verja kjarasamninga.
Með þessu ætti að ná verðbólgu niður og skapa aðstæður fyrir vaxtalækkun. Ríkisstjórnin sé einnig reiðubúin til að halda hækkunum á gjaldskrám innan við 2,5% á næsta ári.
Eftir rétta viku rennur út sá frestur sem aðilar atvinnulífsins hafa til að ákveða hvort kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og margra stærstu stéttarfélaga landsins fái að standa, þrátt fyrir að verðlagsforsendur hans séu brostnar.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, voru gestir í Speglinum í kvöld og ræddu stöðuna á vinnumarkaðnum.
Halla segir aðgerðirnar sem Kristrún boðaði í dag vera aðgerðir sem ríkisstjórnin hefði átt að fara í þegar kjarasamningarnir voru undirritaðir.
„Þetta er það sem þau áttu að gera 2024. Þetta er það sem var undirritað og yfirlýsingarnar, þær eru allar voðalega fallegar og þær eru allar til. Þetta er það sem átti að gerast þá. Þannig að ég segi það, þegar nú er sagt að ríkið ætli að fara niður með sínar gjaldskrár: þó það nú væri. Það var „díllinn“ allan tímann.“
VR, LÍV og Fagfélögin sendu fyrirtækjum bréf í síðasta mánuði þar sem þau óskuðu svara um hvað þau ætli að leggja af mörkum svo kjarasamningar héldu gildi sínu. Stórfyrirtæki, þar á meðal stórar verslunarkeðjur, hafa boðað verðlækkanir á fjölda tegunda, sem sumar hafa þegar tekið gildi. Fyrirtæki hafa einnig tilkynnt um frestun á fyrirhuguðum verðhækkunum.
„Mér finnst hafa komið margar mjög jákvæðar merkjasendingar þaðan og ég ber virðingu fyrir því. Þarna inni á milli eru fyrirtæki sem eru svolítið að skella sér á ölduna en það eru líka fyrirtæki sem eru að taka raunverulega áhættu og við sjáum það og við kunnum að meta það.“
Ekki sjálfgefið að kjarasamningum verði sagt upp
Finnbjörn segir ASÍ meta sameiginlega frá öllum hliðum hvort segja eigi upp kjarasamningum.
„Það er ekkert sjálfgefið að það verði sagt upp samningum en Samtök atvinnulífsins verða náttúrulega bara að koma að borðinu. Þau geta ekki skýlt sig undan því að hér séu hæstu laun í heimi því það er bara ekki reyndin.“
Mælingar sýni að launahlutfall sé ekki hærra hér en á Norðurlöndunum. Því sé ekkert afbrigðilegt í gangi á Íslandi.
Finnbjörn segir Samtök atvinnulífsins verða að reyna að berja í brestina til að bjarga kjarasamningunum.
„Það eru hópar innan okkar vébanda sem hafa eingöngu fengið þær umsömdu launahækkanir og þeir hópar eru í mínus. Með einhverjum afgerandi hætti þá þurfa Samtök atvinnulífsins að koma að borðinu og leggja eitthvað af mörkum inn í þetta svo þetta gangi upp.“
Ertu þá að tala um launahækkanir beinlínis?
„Það getur verið með ýmsu móti, það þurfa ekkert endilega að vera launahækkanir.“
Hlusta má á viðtalið við Höllu og Finnbjörn í heild sinni í spilaranum.