Plínio Vicentin Júnior, 59 ára þyrluflugmaður, býður sig fram til brasilíska þingsins undir nafninu Plínio Trump. Hann er einn nokkur hundruð óvenjulegra frambjóðenda sem halda lífi í brasilískri kosningahefð sem nær aftur um nærri átta áratugi.
Plínio líkir eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta í útliti og framkomu. Hann greiðir hárið á svipaðan hátt, klæðist löngu appelsínugulu bindi og hermir jafnvel eftir göngulagi forsetans.
„Trump er viðkunnanlegur og goðsagnakenndur,“ sagði Plínio Trump við AP í Juiz de Fora. „Fáir hafa sýnt mér hæðnisglott. Flestir brosa og faðma mig.“
Nokkur hundruð„grínframbjóðendur“
Í frétt AP kemur fram að hann sé þó langt frá því að vera eini frambjóðandinn sem notar nafn eða ímynd þekktrar manneskju til að vekja athygli á sér. Alls sækjast rúmlega 7.800 manns eftir sæti á brasilíska þinginu í kosningunum í ár og nokkur hundruð þeirra eru „grínframbjóðendur“. Þingkosningar í Brasilíu fara fram sunnudaginn 4. október.
Meðal annarra frambjóðenda er Henrique Barack Obama, sem heitir réttu nafni Cláudio Henrique dos Anjos og sækist nú eftir sæti í öldungadeildinni.
Þá býður Mick Jagger, réttu nafni Walcy Calixto Vieira, sig fram til fylkisþingsins í Goiás. Hann er ekki tónlistarmaður heldur 66 ára trésmiður með úfið hár og topp sem nær niður að augabrúnum.
Aðrir velja nöfn sem vísa ekki til frægra einstaklinga, svo sem „Tsunami Grandmother“, „Lonely Boy“ og „Samurai Taxi Driver“.
Þurfa að uppfylla sömu skilyrði og aðrir
Frambjóðendurnir þurfa þrátt fyrir óvenjuleg nöfn að uppfylla sömu skilyrði og aðrir sem bjóða sig fram. Þeir þurfa meðal annars að tilheyra einum af 30 stjórnmálaflokkum landsins og standast reglur um hreina sakaskrá.
Hlutfallskosningakerfi Brasilíu gerir það að verkum að frambjóðendur sem þessir geta haft áhrif þótt þeir nái sjálfir ekki kjöri. Atkvæði þeirra telja með í heildaratkvæðafjölda flokksins og geta því hjálpað flokknum að tryggja sér fleiri þingsæti.
Skrifuðu nafn nashyrnings á kjörseðil
Hefðin nær aftur til ársins 1959 þegar um 100 þúsund kjósendur í São Paulo skrifuðu nafnið Cacareco, nafn nashyrnings úr dýragarði borgarinnar, á kjörseðla í sveitarstjórnarkosningum. Atkvæðin voru síðar ógilt.
Svokallaðir „grínframbjóðendur“ hafa náð að komast á þing. Árið 2010 vann sirkustrúðurinn og grínistinn Tiririca þingsæti með meira en 1,3 milljónir atkvæða. Kosningabarátta hans byggðist meðal annars á því að gera grín að stjórnmálum og eigin þekkingarleysi á starfi þingmanna.
Í kosningabaráttunni notaði hann meðal annars slagorð þar sem hann sagðist ekki vita hvað þingmaður gerði og lofaði að komast að því. Hann hefur síðan setið fjögur kjörtímabil og sækist nú eftir því fimmta.